Verði að uppfæra vefsíður strax vegna veikleika
Leiðbeiningar um uppfærslu vegna alvarlegs öryggisbrests í kerfum sem nota PHP-forritunarmál hafa nú verið birtar á vef CERT-IS, netöryggissveitar íslenskra stjórnvalda.
Magni Reynir Sigurðsson, forstöðumaður CERT-IS, ræddi við mbl.is um málið. Hann biðlar til vefsíðueigenda að uppfæra eins skjótt og unnt er.
Upplýsingar um tvo veikleika í kerfinu láku en þeir geta gert árásaraðilum kleift að stela viðkvæmum upplýsingum að hans sögn. Magni segist aðspurður ekki hafa upplýsingar um að óprúttnir aðilar hafi nýtt sér þessa veikleika gegn íslenskum vefsíðum.
WordPress, Dupal og Joomla eru allt vefsíðuhýsingarfyrirtæki sem notast við PHP-forritunarmálið. Fjöldi hérlendra og erlendra vefsíðna er hýstur þar.
„Stór hluti vefsíðna“
„Það er mjög stór hluti vefsíðna sem keyra á PHP,“ segir Magni og nefnir WordPress sem dæmi.
„Veikleikarnir gera árásaraðilanum kleift að taka yfir vefþjón með því að keyra fjarkeyrslu í gegnum þennan veikleika.“
Það er þá einhvers konar álagsárás eða hvað?
„Nei, það getur keyrt í rauninni hérna sem sagt fjarkeyrslu á kóða sem getur gert honum kleift að taka yfir vefþjóninn og þar af leiðandi gæti hann komist yfir allar upplýsingar og baksvið og annað.
Þannig að þetta er í rauninni innbrot í vefumsjónarkerfið sjálft. Það gefur í rauninni bara yfirtöku.“
Mjög alvarlegt mál
Það hlýtur að vera alvarlegt mál ef það raungerist?
„Já, mjög svo. Aðilar hafa verið að grípa til þess að taka niður vefsíðu sína á meðan það er unnið að mótvægisaðgerðum,“ segir Magni en bendir á að uppfærslurnar séu komnar út eins og áður segir.
„Þannig að aðilar sem eru að reka vefþjóna og annað ættu að fara strax í að uppfæra allt sem er undir.“
Takist það ekki verða eigendur vefsíðnanna að fara í mótvægisaðgerðir eins og að taka þær niður tímabundið.
Magni segir að CERT-IS vinni nú að því að kortleggja hvaða íslensku vefsíður veikleikarnir gætu varðað.
Spurður um hvernig málið upplýstist segir Magni að það hafi gerst í gegnum alþjóðlegt samstarf og hlutverk CERT-IS sem netöryggissveitar Íslands.
Aðspurður segist hann ekki vita hvort stór íslensk fyrirtæki hafi gripið til þess ráðs að taka niður vefsíður sínar en hann viti þess dæmi erlendis.
Háskóli Íslands tilkynnti rétt í þessu að hann hefði tekið niður sína vefi. Uglan er þar á meðal.
内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

