Meta sektað um rúmlega 3.000 milljarða
Dómari í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum dæmdi tæknifyrirtækið Meta í dag til að greiða 25 milljarða dala, jafnvirði um 3.031 milljarðs íslenskra króna, fyrir að blekkja notendur um meðferð persónuupplýsinga þeirra. Fjársektin er ein sú hæsta sem tæknirisa hefur verið gert að greiða.
Nýja-Mexíkó höfðaði mál gegn Meta árið 2021 vegna hneykslismálsins sem tengdist pólitíska ráðgjafarfyrirtækinu Cambridge Analytica. Taldi ríkið að samfélagsmiðlafyrirtækið hefði villt um fyrir notendum með opinberum yfirlýsingum um vernd persónuupplýsinga þeirra.
Eftir tveggja vikna réttarhöld í síðasta mánuði komst kviðdómur við ríkisdómstól í Santa Fe að þeirri niðurstöðu að Meta hefði brotið 43 milljón sinnum gegn neytendaverndarlögum Nýju-Mexíkó. Við hverju broti lá allt að 5.000 dala sekt, jafnvirði um 606 þúsund króna, að því er segir í umfjöllun New York Times.
Skaðinn seint ofmetinn
Francis J. Mathew, dómari við dómstólinn í Santa Fe, ákvað fjárhæð sektarinnar í dag.
„Skaðinn í þessu máli verður seint ofmetinn og snertir sjálfan grundvöll viðskiptalíkans Facebook,“ skrifaði Mathew í 20 blaðsíðna dómi. Sagði hann að „gríðarlegur fjöldi ásetningsbrota“, sem hefðu verið ítrekuð árum saman, réttlætti að þyngstu fjársekt væri beitt.
Niðurstaðan er þyngsta áfall Meta til þessa í röð dómsmála sem fyrirtækið hefur tapað vegna skaðans sem samfélagsmiðlar þess hafa valdið notendum. Meta á Facebook, Instagram og WhatsApp.
Ríki og neytendur hafa höfðað þúsundir mála vegna ásakana um að Facebook og Instagram hafi meðal annars stefnt öryggi barna í hættu, valdið samfélagsmiðlafíkn, notað upplýsingar um fólk án samþykkis þess og brotið gegn friðhelgi einkalífs þess.
内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗