Fækka þúsundum starfa vegna gervigreindar

Samkvæmt upplýsingum frá stjórn bankans er stefnt að einfaldara skipulagi og aukinni skilvirkni með tæknibreytingum sem byggja á gervigreind. AFP

Breski stórbankinn Barclays hyggst fækka störfum um 5.000 fyrir árslok 2026, eða sem nemur um fimm prósentum af starfsfólki bankans á heimsvísu. Fækkunin er liður í umfangsmikilli hagræðingu þar sem aukin nýting gervigreindar gegnir lykilhlutverki.

Bankinn greindi frá áformunum í dag, samhliða birtingu uppgjörs fyrir þriðja ársfjórðung. Þar kom fram að hagnaður bankans eftir skatta hefði aukist um 13 prósent frá sama tímabili í fyrra.

Samkvæmt upplýsingum frá stjórn bankans er stefnt að einfaldara skipulagi og aukinni skilvirkni með tæknibreytingum sem byggja á gervigreind.

Um 60 prósent þeirra starfa sem verða lögð niður eru í stoðþjónustu bankans. Þar á meðal verður hugbúnaðarþróunaraðilum fækkað, enda segir bankinn gervigreind gera starfsfólki kleift að skila meiri afköstum.

内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅