Gervigreindarþjónar í netbankanum vekja ugg

Jafnvel þótt notandinn veiti leyfi brýtur þetta í bága við reglur flestra banka, sem krefjast þess að fólk skrái sig sjálft inn á eigin reikninga. AFP

Stórir bandarískir bankar hafa orðið varir við óheimila gervigreindarþjóna sem taka til starfa innan reikninga viðskiptavina. Hafa sumir þjónanna reynt að grípa til aðgerða sem virðast óháðar fyrirmælum notenda.

Frá þessu greinir bandaríski vefmiðillinn Axios og hefur eftir heimildarmönnum sínum.

Hermir miðillinn að erfiðleikarnir við að greina á milli manneskju og gervigreindarþjóns neyði nú banka til að reyna að loka á tæknina og endurskrifa notkunarskilmála sína í snatri.

Bankar á borð við Morgan Stanley, Bank of America, JPMorgan, Wells Fargo og fleiri eru sagðir keppast við að hemja áhættuna. Eru sumir þeirra sagðir vita af óheimilum aðgangi slíkra þjóna.

Brýtur í bága við reglur flestra banka

Yfirleitt er um að ræða tilvik þar sem þeir fá aðgang að reikningi manneskju með leyfi notandans og innskráningarupplýsingum hans. Jafnvel þótt notandinn veiti leyfi brýtur þetta í bága við reglur flestra banka, sem krefjast þess að fólk skrái sig sjálft inn á eigin reikninga.

Stjórnendur bankanna óttast það sem þetta kann að hafa í för með sér, einkum ef notandi hefur veitt þjóni heimild til að kaupa eða millifæra fé.

Lýsa þeir ástandinu sem hrollvekjandi og hefur Axios eftir einum þeirra að í geiranum séu uppi miklar áhyggjur af því að þjónar fái aðgang að reikningum viðskiptavina og grípi til aðgerða sem gætu haft áhrif á fjármál notendanna.

内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅