Vilja styrkja stöðu íslenskunnar hjá Apple
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, fundaði með fulltrúum Apple í apríl síðastliðnum og óskaði eftir því að íslenska yrði innleidd í stýrikerfi fyrirtækisins. AFP
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið óskar eftir dæmum um hindranir sem notendur Apple-tækja mæta vegna þess að íslenska er ekki í boði. Dæmin eiga að styrkja samtal ráðuneytisins við Apple um innleiðingu íslensku í stýrikerfi fyrirtækisins og sýna hvaða ávinningur fylgi íslenskum tungumálastuðningi.
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, fundaði með fulltrúum Apple í apríl og óskaði eftir því að íslenska yrði innleidd í stýrikerfi fyrirtækisins. Í kjölfarið hefur íslenskum máltæknigögnum verið deilt með Apple til að auðvelda innleiðingu, að því er fram kemur í tilkynningu ráðuneytisins.
Söfnun dæma um reynslu notenda er næsta skref í eftirfylgni ráðuneytisins.
„Ekki munaður heldur mannréttindamál“
„Máltækni er ekki munaður heldur mannréttindamál. Við þurfum hjálp notenda og þeirra sem þekkja aðstæður til að sýna Apple með raunverulegum dæmum hvað er í húfi. Því hvet ég fólk til að deila reynslu sinni,“ er haft eftir Loga í tilkynningunni.
ÖBÍ réttindasamtök og Almannarómur eru samstarfsaðilar ráðuneytisins í verkefninu. Að sögn ÖBÍ geta innbyggðir aðgengiseiginleikar Apple-tækja og forrit skipt sköpum fyrir fatlað fólk og aðra sem glíma við aðgengisvanda. Sum þessara forrita séu eingöngu í boði fyrir Apple-tæki og samspil tækjanna geti jafnframt einfaldað notkun þeirra.
„Aðgengi að snjalltækni skiptir í dag öllu máli og sérstaklega fyrir fatlað fólk. Tæknin getur fjarlægt hindranir og fjölgað til muna tækifærum til menntunar og atvinnu,“ er haft eftir Rósu Maríu Hjörvar, sem er stafrænn verkefnastjóri hjá ÖBÍ.
Skortur á íslensku takmarkar sjálfstæði
Rósa María nefnir sem dæmi að fólk með hreyfihömlun noti innbyggða raddstýringu Apple-tækja á eigin tungumáli til að stjórna símtækjum og með þeim umhverfi sínu og samskiptum. Þetta geti gert fólki kleift að lifa sjálfstæðu lífi þrátt fyrir mikla hreyfiskerðingu eða lömun.
Í tilkynningunni segir að hér á landi sé ekki hægt að nýta þessa tækni nema á ensku. Notendur geti því ekki nýtt hana til að opna íslensk smáforrit á borð við Hljóðbókasafnið eða skrifa á íslensku. Til þess þurfi þeir að kalla eftir aðstoð. Þetta sé aðeins ein af mörgum hindrunum sem skortur á íslenskustuðningi skapi.
Nánar á vef Stjórnarráðsins.
内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
