Norskir fjölmiðlar í hart gegn Meta
Helstu fjölmiðlasamtök og fjölmiðlafyrirtæki Noregs hafa gripið til dómsaðgerða til að koma í veg fyrir að nýir notendaskilmálar Meta taki gildi. Þau segja skilmálana ógna réttindum sínum að eigin fréttaefni.
Að sögn aðilanna tíu myndu skilmálarnir, sem eiga að taka gildi 20. nóvember, veita Meta, eiganda Facebook og Instagram, rétt til að safna greinum þeirra, ljósmyndum og myndskeiðum, þar á meðal efni sem aðeins er aðgengilegt áskrifendum. Fyrirtækið gæti meðal annars notað efnið til að þróa vörur sem byggjast á gervigreind.
„Óttinn er sá að fyrirtækin muni nýta þetta vald til að tryggja sér réttindi að fréttaefni,“ segir Lene Eltvik Vindfeld, sem fer fyrir samtökum norskra fjölmiðlafyrirtækja, MBL, í yfirlýsingu.
„Meta nýtir fjárfestingar fjölmiðlafyrirtækja til að þróa gervigreindarþjónustu sem er í beinni samkeppni við þau. Þetta er bæði óásættanlegt og raskar samkeppni,“ segir hún enn fremur.
Vilja lögbann á gildistöku skilmálanna
Að sögn þeirra sem standa að málsókninni myndu nýju skilmálarnir gilda um alla sem eru með reikninga ætlaða atvinnustarfsemi á miðlum Meta, hvort sem um er að ræða fjölmiðla, önnur fyrirtæki eða verslanir. Eina leiðin til að hafna skilmálunum væri að eyða reikningunum.
Þau segjast hafa lagt fram beiðni hjá héraðsdómi Óslóar um lögbann á gildistöku skilmálanna þar til efnisleg niðurstaða liggur fyrir í málinu.
Meðal þeirra sem standa að málsókninni eru norska ríkisútvarpið NRK, fjölmiðlafyrirtækin Schibsted, Amedia, Polaris og Aller, auk norsku fréttastofunnar NTB.
Frestuðu gildistökunni til að útskýra breytingarnar
Í svari Meta við fyrirspurn AFP segir að gildistöku nýju skilmálanna hafi verið frestað til 20. nóvember „til að gefa okkur meiri tíma til að útskýra fyrir samstarfsaðilum okkar og hagsmunaaðilum hvað breytist og hvað ekki“.
MBL og NRK hótuðu einnig 14. október að höfða mál gegn Meta. Þau sökuðu bandaríska tæknirisann um að hagnast á svikaauglýsingum sem birtust í þeirra nafni og voru ætlaðar til að féfletta netnotendur.
内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗