Stafrænt Ísland verður ný ráðuneytisstofnun
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur ákveðið að setja stofnunina á fót og er uppbygging hennar liður í innleiðingu stefnu um opinbera þjónustu. mbl.is/Karítas
Ný ráðuneytisstofnun um stafræna þjónustu og upplýsingatækni, sem ber heitið Stafrænt Ísland, tekur til starfa 1. janúar 2027. Starf framkvæmdastjóra Stafræns Íslands verður auglýst í vikunni.
Verkefni verkefnastofu um Stafrænt Ísland verða þá flutt til stofnunarinnar. Jafnframt er stefnt að því að hún taki við upplýsingatækniverkefnum Umbru, rekstrarfélags Stjórnarráðsins, á fyrstu mánuðum ársins.
Þetta kemur fram í tilkynningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, hefur ákveðið að setja stofnunina á fót og er uppbygging hennar liður í innleiðingu stefnu um opinbera þjónustu.
Samhliða breytingunum verður öðrum verkefnum Umbru fundinn farvegur innan Stjórnarráðsins og starfsemi félagsins í núverandi mynd lögð niður.
Byggt á reynslunni af Ísland.is
Nýju stofnuninni er ætlað að leiða áframhaldandi þróun stafrænnar þjónustu og styðja opinbera aðila við að nýta nýja tækni til að bæta þjónustu og rekstur. Við það verður byggt á þekkingu og reynslu sem orðið hefur til við uppbyggingu Ísland.is.
Samkvæmt tilkynningunni er markmiðið að gera opinbera þjónustu betri, aðgengilegri og hagkvæmari, þannig að hún mæti þörfum fólks og atvinnulífs.
Aukin áhersla á gögn og gervigreind
Aukin áhersla verður lögð á gagnamál hins opinbera og upplýsingatækni, samhliða áframhaldandi uppbyggingu þjónustu á Ísland.is. Markmiðið er að efla getu ríkisins til að nýta gögn og gervigreind með markvissum hætti til að bæta þjónustu og auka skilvirkni.
Í tilkynningunni segir að þessar áherslur falli að tillögum starfshóps um málefni gervigreindar sem kynntar voru fyrr í október. Markviss innleiðing gervigreindar hjá hinu opinbera er þar eitt þriggja forgangsverkefna.
Starfshópurinn leggur meðal annars áherslu á sameiningu rekstrar upplýsingatækni ríkisins og eflingu gagnamála til að styðja við innleiðingu gervigreindar hjá stofnunum og ráðuneytum.
内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗