ESB vill bíða með landslög um samfélagsmiðlabönn
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur frestað í 12 mánuði frumvarpi Austurríkis um bann við samfélagsmiðlanotkun barna yngri en 14 ára. ESB vill að aðildarríkin bíði með landsbundnar reglur sem skarast við fyrirhuguð sameiginleg lög sambandsins.
Aðildarríki þurfa að tilkynna framkvæmdastjórninni um lagafrumvörp til að tryggja að þau samræmist reglum ESB. Talsmaður framkvæmdastjórnarinnar, Thomas Regnier, segir að frestunin nái til frumvarpa sem skarist við framtíðarreglur sambandsins.
Framkvæmdastjórnin lagði í síðasta mánuði til að börnum yngri en 13 ára yrði bannað að nota samfélagsmiðla og að aðgangur barna til 15 ára yrði takmarkaður og undir eftirliti. Hún vonast til að aðildarríkin og Evrópuþingið nái samkomulagi um reglurnar, sem kallast EU Kids Act, á næstu mánuðum.
Mismunandi reglur kljúfi sambandið
ESB óttast að mismunandi aldursmörk í aðildarríkjunum geti klofið sambandið. Þá gætu ríki freistast til að draga samningaviðræður um sameiginleg lög á langinn ef þau hefðu þegar sett sínar eigin reglur.
Ákvörðunin gildir þó ekki með sama hætti um öll frumvörp. Frakkland tilkynnti ESB um frumvarp sitt áður en tillaga sambandsins kom fram og því er ekki búist við að því verði hafnað, þótt framkvæmdastjórnin hafi óskað eftir breytingum. Grikkland hefur þegar sett eigin reglur sem voru samdar löngu fyrir september. Framkvæmdastjórnin hefur ekki enn tekið afstöðu til fyrirhugaðra banna á Ítalíu og í Slóvakíu.
内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗