Tölvuárás á stærstu rafmyntakauphöll heims
Fyrstu athuganir benda til þess að atvikið kunni að tengjast fartölvu verkfræðings sem hafði verið brotist inn í. Ljósmynd/Colourbox
Binance, stærsta rafmyntakauphöll heims, varð fyrir umfangsmikilli tölvuárás sem náði til fjármuna að andvirði um 6,3 milljarða dala, en um helmingur þeirrar fjárhæðar var frystur til að koma í veg fyrir stórfelldan þjófnað.
Fyrstu athuganir benda til þess að atvikið kunni að tengjast fartölvu verkfræðings sem hafði verið brotist inn í, sem gerði árásaraðila kleift að taka út fé í leyfisleysi, að sögn Binance.
Tvenn greiningarfyrirtæki hafa rakið atvikið til norðurkóreskrar tölvuþrjótadeildar sem nefnist TraderTraitor.
Rannsóknarfyrirtækið TRM Labs, sem nýtir gervigreind, sagði í skýrslu að ýmsir þættir árásarinnar á Binance líktust fyrri atvikum sem tengd hafa verið Norður-Kóreu, þar á meðal innbrotinu í kauphöllina Bybit í fyrra.
Markar vatnaskil
Ari Redbord, alþjóðlegur yfirmaður stefnumótunar hjá fyrirtækinu, sagði í samtali við BBC að innbrotið í Binance markaði „vatnaskil“ og væri ólíkt öllu sem greinin hefði áður séð.
Árásaraðilinn hefur enn gríðarlegar fjárhæðir af stolnum eignum undir höndum, sem þýðir að tilraunum til að rekja og endurheimta féð er hvergi nærri lokið, bætti Redbord við.
Chainalysis, annað greiningarfyrirtæki á sviði rafmynta, sagðist einnig telja „með mikilli vissu“ að norðurkóreski hópurinn tengdist innbrotinu.
„Þetta lítur sannarlega út fyrir að vera tölvuárás á Binance,“ sagði Changpeng Zhao, fyrrverandi forstjóri Binance, sem stýrir ekki lengur samstæðunni en er enn meirihlutaeigandi.
Paolo Ardoino, forstjóri Tether – fyrirtækis sem gefur út rafmyntina USDT – sagði að fyrirtæki hans hefði fryst um 1,6 milljarða dala „í tengslum við mögulega tölvuárás á Binance-kauphöllina“.
Árásin á Binance kemur á sama tíma og margir sérfræðingar lýsa áhyggjum af því að sífellt aukin geta gervigreindarlíkana (AI) gæti grafið undan dulkóðun og öryggisreglum í upplýsingatækni.
内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗