Íslenskt fyrirtæki neitar að fjarlægja gögnin

Markwayne Mullin, heimavarnaráðherra Bandaríkjanna.

Markwayne Mullin, heimavarnaráðherra Bandaríkjanna. AFP

Íslenska hýsingarfyrirtækið FlokiNET hyggst ekki verða við beiðni bandaríska heimavarnaráðuneytisins um að fjarlægja gögn um tugi þúsunda starfsmanna ráðuneytisins og undirstofnana þess eða takmarka aðgang að þeim. Ráðuneytið segir birtinguna stofna meira en 40 þúsund manns í hættu.

Samkvæmt frétt Reuters var beiðnin send fyrirtækinu í gær og birti FlokiNET hana á netinu. Í henni segir að gagnagrunnurinn setji meira en 40 þúsund einstaklinga, sem hægt sé að bera kennsl á, í hættu á að verða fyrir áreitni, ofsóknum og líkamlegum skaða.

Netöryggisfyrirtækið ZeroFox sendi erindið til FlokiNET. Það hefur umboð bandarísku innflytjenda- og tollgæslustofnunarinnar, ICE, til að óska eftir því að efni verði fjarlægt af netinu.

Segir gögnin varða störf fólksins

Kolja Weber, framkvæmdastjóri FlokiNET, sagði við Reuters að fyrirtækið myndi ekki fjarlægja gögnin. Þau hefðu að geyma vinnustaðaföng og vinnusímanúmer opinberra starfsmanna en ekki heimilisföng þeirra og einkasímanúmer.

FlokiNET hefur jafnframt varið ákvörðun sína með vísan til almannahagsmuna. Samkvæmt umfjöllun Al Jazeera telur fyrirtækið almenning hafa réttmæta hagsmuni af því að vita hverjir sinni framkvæmd útlendingaeftirlits, í umboði hverra þeir starfi og á hvaða starfsstöð.

FlokiNET var stofnað á Íslandi árið 2012. Samkvæmt eigin kynningu var fyrirtækinu ætlað að veita tjáningarfrelsi, frjálsri fjölmiðlun og verkefnum uppljóstrara skjól.

Segjast vinna að vernd starfsmanna

Talsmaður heimavarnaráðuneytisins sagði við Reuters að ráðuneytinu væri kunnugt um hugsanlegt öryggisbrot og að unnið væri að því að bregðast hratt og skilvirkt við.

„Við tökum allar ógnir við öryggi starfsmanna okkar og embættismanna alvarlega og munum vinna að því að tryggja að allir njóti viðeigandi verndar,“ sagði talsmaðurinn.

Gagnsæissamtökin DDoSecrets, sem starfa án hagnaðarsjónarmiða, birtu á miðvikudag gögn um meira en 40 þúsund starfsmenn heimavarnaráðuneytisins og undirstofnana þess á vef sínum. Samhliða var birtur sérstakur, leitarbær gagnagrunnur sem tölvuþrjóturinn og blaðamaðurinn „maia arson crimew“ hafði þróað.

Birtist aftur undir öðru léni

Gagnagrunnurinn var um skamma hríð óaðgengilegur í gær en birtist fljótlega aftur undir öðru léni.

Samkvæmt Al Jazeera segir FlokiNET að skráningaraðili lénsins hafi gert það óvirkt þótt hýsingarfyrirtækið hafi hafnað beiðninni um að fjarlægja efnið. Upplýsingarnar hafi síðan verið gerðar aðgengilegar undir öðru léni.

Hópur sem kallar sig „Department of Peace“, eða friðarráðuneytið, lýsti ábyrgð á því að hafa komist yfir gögnin. Í yfirlýsingu hópsins á miðvikudag sagði að starfsmenn heimavarnaráðuneytisins hefðu upplýsingar um hópinn og því væri aðeins sanngjarnt að hann hefði upplýsingar um þá.

Hópurinn kvaðst vona að gögnin gætu nýst til að takmarka frekari skaða af völdum ráðuneytisins og lýsti stuðningi við aðgerðir í þá átt.

Talsmenn persónuverndar hafa gagnrýnt notkun heimavarnaráðuneytisins á persónuupplýsingum frá öðrum stofnunum við framfylgd útlendingalöggjafar. Þar á meðal eru gögn úr Medicaid-sjúkratryggingakerfinu og upplýsingar um skattgreiðendur.

内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅