Beint: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta?
Innlent | mbl | 30.10.2026 | 11:17 | Uppfært 12:56
Annar fundur haustmisseris í fundaröðinni Heilsan okkar fer fram í dag á milli kl. 11.45 og 13.15. Á fundinum verður fjallað um peptíð og spurt hvort það sé töfralausn eða heilsufarsleg áhætta.
Heilsan okkar er fundaröð Háskóla Íslands og Landspítala sem hefur það að markmiði að varpa ljósi á áríðandi mál líðandi stundar er varða heilsu og heilbrigðisþjónustu, að því er fram kemur í tilkynningu.
Fundurinn fer fram í Veröld, húsi Vigdísar, og hægt verður að fylgjast með honum í beinu streymi hér fyrir neðan.
Dagskrá:
- Viðar Guðjohnsen, lyfjafræðingur hjá Lyfjastofnun – Ólögleg peptíð, dauðans alvara
- Hlíf Hauksdóttir, lyfjafræðingur og eigandi Apótek NOR – Peptíð á mannamáli
- Arna Guðmundsdóttir, innkirtlalæknir hjá Landspítalanum – Peptíð, spennandi framtíð?
- Bjarni Sigurðsson, lyfjafræðingur hjá heilbrigðisráðuneytinu – Ströng lyfjagjöf nauðsynleg
- Pallborðsumræður. Rúna Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri Lyfjastofnunar, verður þátttakandi í pallborðsumræðum ásamt fyrirlesurum.
内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/68/83/1688346.jpg)