Pútín segir Musk „sannkallaðan snilling“

Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir bandaríska tækniauðjöfurinn Elon Musk vera „sannkallaðan snilling“ fyrir að hafa komið þúsundum gervihnatta á braut um jörðu.

Rússar vinna nú að því að þróa eigið gervihnattanet til að veita netaðgang.

„Elon Musk er snillingur, sannkallaður snillingur,“ sagði Pútín þegar hann skoðaði sýningu í tengslum við leiðtogafund Rússlands og Afríkuríkja í Moskvu í gær.

Ummælin falla á sama tíma og deilur standa milli Úkraínu og Bandaríkjanna um aðgang að Starshield, gervihnattaneti sem er hannað fyrir hernaðarnot og byggist á þjónustu SpaceX, fyrirtækis Musks.

内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅