Beita nýrri meðferð við Parkinsonsveiki
Við meðferð Sumitomo Pharma eru iPS-frumur úr heilbrigðum gjöfum látnar þroskast í forvera heilafrumna sem framleiða dópamín. Með því er leitast við að bæta upp tap á dópamínframleiðandi frumum hjá fólki með Parkinsonsveiki. Ljósmynd/Colourbox
Sjúklingur hefur gengist undir nýstárlega stofnfrumumeðferð við Parkinsonsveiki í Japan. Þetta er fyrsta ígræðslan sem framkvæmd er eftir að meðferðin hlaut skilyrt samþykki þar í landi og sú fyrsta sinnar tegundar í heiminum á þeim grundvelli.
Þetta tilkynnti japanska lyfjafyrirtækið Sumitomo Pharma í dag.
Meðferðin felst í því að græða milljónir frumna í heila sjúklings. Frumurnar eru unnar úr svonefndum iPS-frumum, örvuðum fjölhæfum stofnfrumum, sem geta þroskast í hvaða frumugerð líkamans sem er.
Japönsk eftirlitsyfirvöld samþykktu meðferðina með skilyrðum í mars eftir vel heppnaða klíníska rannsókn.
„Fyrsta ígræðslan fór fram á háskólasjúkrahúsinu í Kyoto í október,“ sagði fyrirtækið í afkomutilkynningu í dag. Frekari upplýsingar voru ekki veittar.
Yfir tíu milljónir með sjúkdóminn
Parkinsonsveiki er langvinnur hrörnunarsjúkdómur í taugakerfinu sem hefur áhrif á hreyfingar líkamans. Hann veldur oft skjálfta og öðrum hreyfitruflunum.
Talið er að meira en tíu milljónir manna um heim allan séu með sjúkdóminn, samkvæmt upplýsingum frá Parkinson’s Foundation.
Að sögn samtakanna draga þau meðferðarúrræði sem nú standa til boða úr einkennum án þess að hægja á framgangi sjúkdómsins eða stöðva hann.
iPS-frumur eru búnar til með því að fá fullþroska, sérhæfðar frumur til að hverfa aftur á óþroskað stig.
Við meðferð Sumitomo Pharma eru iPS-frumur úr heilbrigðum gjöfum látnar þroskast í forvera heilafrumna sem framleiða dópamín. Með því er leitast við að bæta upp tap á dópamínframleiðandi frumum hjá fólki með Parkinsonsveiki.
Dró úr einkennum hjá fjórum
Í klínískri rannsókn fengu sjö sjúklingar á aldrinum 50 til 69 ára ígræðslu með annaðhvort fimm eða tíu milljónum frumna. Frumunum var komið fyrir báðum megin í heilanum.
Fylgst var með sjúklingunum í tvö ár eftir ígræðsluna og komu engar alvarlegar aukaverkanir í ljós. Dró úr einkennum hjá fjórum þeirra.
Sumitomo Pharma greindi frá því í dag að fyrirtækið áformaði að láta 20 til 30 sjúklinga gangast undir ígræðslu fyrir lok mars 2029. Fyrirtækið stendur einnig að klínískri rannsókn í Bandaríkjunum.
Samkvæmt japönskum fjölmiðlum mun meðferðin hljóta fullt samþykki í Japan ef öryggi hennar og virkni verða staðfest á næstu sjö árum.
Stofnfrumur einnig notaðar við hjartaaðgerð
Tilkynningin kemur mánuði eftir að fyrsta aðgerð heims þar sem notaðar voru þynnur úr hjartavöðvafrumum, sem unnar voru úr iPS-frumum, fór fram á sjúkrahúsi í Osaka. Slíkar frumur geta stuðlað að myndun nýrra æða og hjálpað til við að endurheimta starfsemi hjartans.
Sú meðferð hlaut einnig skilyrt samþykki í Japan í mars.
内容来自 mbl.is - Tækni og Vísindi,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗