„Eftir fimm ár sé ég mig fyrir mér sem Ólympíufara“
Hin 22 ára Arndís Diljá Óskarsdóttir, sem er frjálsíþróttadrottning úr Hafnarfirði, byrjaði að æfa spjótkast fyrir ellefu árum. Nú býr hún á Miami í Flórída.
„Ég er að læra Sport Management í Florida International University, eða FIU, og æfi og keppi í frjálsum íþróttum á íþróttastyrk. Ég fékk styrkinn fyrir rúmum tveimur árum en mig hafði lengi dreymt um að fara í háskóla í Bandaríkjunum og sameina nám og íþróttir. Þetta var því frábært tækifæri til að láta þann draum rætast og halda áfram að bæta mig í spjótkastinu. Ég flutti út í ágúst árið 2024,“ segir Arndís Diljá.
Arndís Diljá vandist því fljótt að búa nálægt strönd og verja frítíma sínum í sólinni. Ljósmynd/Aðsend
Arndís Diljá býr með kærasta sínum á Miami og er hann er einnig á íþróttastyrk.
„Okkur hafði lengi dreymt um að fara saman í háskóla í Bandaríkjunum og vonuðumst til að finna skóla sem gæti boðið okkur báðum styrk. Við vorum svo heppin að fá það tækifæri hjá FIU.
Það var auðvitað erfitt að flytja frá fjölskyldu og vinum, en það gerði ákvörðunina miklu auðveldari að við værum að fara saman. Við vorum bæði að fylgja draumnum okkar og það er gott að hafa hvort annað þegar maður er að koma sér fyrir í nýju landi.
Veðrið er svo auðvitað stór plús! Hér get ég kastað úti allt árið, en heima á Íslandi þarf ég að kasta í vegg inni yfir vetrartímann. Það skiptir miklu máli fyrir mig að geta æft úti og séð spjótið fljúga allt árið.“
Arndís Diljá hafði búið á Íslandi allt sitt líf en segir að þetta hafið verið réttur tímapunktur fyrir sig til að breyta til. „Ég hef alltaf elskað að ferðast, svo ég var mjög spennt fyrir því að prófa að búa í öðru landi og kynnast nýju umhverfi.“
Skipuleggur sig í kringum æfingar
Hafðir þú farið til Bandaríkjanna áður en þú fluttir?
„Ekki oft, fyrsta ferðin mín til Bandaríkjanna var í mars 2024 og svo fór ég aftur í maí á sama ári. Ég og kærastinn minn fórum til Orlando í æfingabúðir hjá spjótkastþjálfaranum Tom Petranoff. Hann hjálpaði okkur að finna FIU, ásamt pabba kærastans míns, sem var líka spjótkastari. Þessar ferðir urðu því mikilvægur hluti af því að láta drauminn um háskólanám og íþróttir í Bandaríkjunum rætast,“ segir hún.
Hvernig er lífið á Miami?
„Lífið hér er algjör draumur! Hefðbundinn dagur byrjar yfirleitt á því að ég vakna klukkan sjö og fer á æfingu klukkan átta. Suma daga fer ég svo beint á styrktaræfingu á eftir. Síðan tekur skólinn við en ég get sjálf valið stundatöfluna mína og er oftast bara í einum tíma á dag. Það er mjög þægilegt að geta skipulagt námið í kringum æfingarnar.
Við íbúðina mína er geggjuð sundlaug sem ég fer í nánast daglega. Mér finnst svo kósý að synda, lesa og slaka á í sólinni. Svo fer líka tími í heimanám og mér finnst mjög skemmtilegt að elda og baka. Ég kíki líka stundum í „thrift“-búðir, þar sem verið er að selja notuð föt og hluti. Það er sérstaklega gaman hér því þar er hægt að finna alls konar flott á góðu verði. Ég eyði líka tíma með vinum, við spilum, förum í pool eða horfum á eitthvað saman.
Það besta við að búa í Miami er sólin, hitinn og ströndin, og að geta verið úti og gert eitthvað skemmtilegt allt árið. Mér finnst líka svo skemmtilegur fjölbreytileiki hér og ég upplifi að fólk fái að vera það sjálft. Það er alltaf hægt að finna sér eitthvað að gera og prófa eitthvað nýtt,“ segir hún.
Hún nýtir sundlaugina heima hjá sér flesta daga og slakar þá á milli heimanáms og æfinga. Ljósmynd/Aðsend
Er eitthvað við Miami sem var öðruvísi en þú sást fyrir þér?
„Það kom mér mest á óvart hvað spænskan er áberandi hér. Mér finnst stundum eins og allir tali spænsku! Ég hefði mögulega átt að fylgjast aðeins betur með í spænskutímunum í menntaskóla. Annars vissi ég í rauninni frekar lítið um Miami áður en ég flutti hingað, svo það hefur verið mjög gaman að kynnast borginni. Hún er rosalega flott og hefur upp á margt að bjóða.“
Hvað æfir þú oft í viku?
„Ég æfi á hverjum degi og stundum tvisvar á dag. Ég fer bæði á spjótkastæfingar og styrktaræfingar. Þegar ég er ekki að æfa með liðinu æfi ég sjálf eða með kærastanum mínum.“
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera á frídögum?
„Mér finnst langbest að vera úti í sólinni, hvort sem það er við sundlaugarbakkann eða á ströndinni, og njóta þess að vera til. Mér finnst líka gaman að fara í búðarráp og kíkja í „thrift“-búðir. Ég hef líka mjög gaman af því að teikna og mála. Svo finnst mér skemmtilegt að taka myndir og búa til og klippa myndbönd fyrir TikTok. Ég hef mikinn áhuga á samfélagsmiðlum,“ segir hún.
Heppin með bakland
Hefurðu fengið heimsóknir frá Íslandi?
„Já, heldur betur! Fjölskyldan mín hefur verið mjög dugleg að koma í heimsókn og hefur komið á hverju ári síðan ég flutti út. Það er alltaf svo gaman að fá þau og ég er ótrúlega þakklát fyrir það. Systir mín kom meira að segja frá Danmörku til að koma mér á óvart og það var svo gaman hjá okkur. Mamma mín og stjúppabbi ætla að koma í janúar og vinkonur mínar í febrúar. Það verður fyrsta ferð stelpnanna til Bandaríkjanna og ég er rosalega spennt að fá þær hingað.
Það er svo gott að hafa næstu heimsókn til að hlakka til og ég kann virkilega að meta að fólkið mitt gefi sér tíma til að koma,“ segir Arndís Diljá.
Hvar sérðu sjálfa þig fyrir þér eftir fimm ár?
„Eftir fimm ár sé ég mig fyrir mér sem Ólympíufara. Það er stór draumur hjá mér og ég vona að ég verði þá á toppnum á spjótkastferlinum mínum. Ég veit ekki alveg hvar ég verð búsett. Hvað vinnu varðar er ég enn með alls konar hugmyndir sem breytast nánast daglega. Það er svo margt sem mig langar að prófa, þannig að ég er spennt að sjá hvert námið og áhugamálin mín leiða mig.“
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗




