Þrjú af bestu hótelum Víetnams

Víetnam hefur upp á margt að bjóða.

Víetnam hefur upp á margt að bjóða. Samsett mynd

Glæsileg hótel, friðsælir felustaðir og villur við sjávarsíðuna. Víetnam hefur upp á margt að bjóða ferðamönnum sem vilja gera vel við sig í fríinu.

Capella Hanoi, Amanoi og Four Seasons Resort The Nam Hai eru meðal hótela sem hlutu viðurkenningu í Michelin-handbókinni fyrir árið 2026. Fyrstu tvö státa af þremur Michelin-lyklum, hæstu viðurkenningu handbókarinnar fyrir hótel, en hið síðastnefnda hlaut tvo. Hér eru þrír ólíkir kostir fyrir þá sem vilja kynnast Víetnam og njóta um leið fyrsta flokks gistingar.

Capella Hanoi fyrir unnendur borgarlífs og hönnunar

Hönnun Capella Hanoi í höfuðborg Víetnams sækir innblástur í óperuhús og sviðslistir þriðja áratugar síðustu aldar. Hönnuðurinn Bill Bensley á heiðurinn af útlitinu, en herbergin og svíturnar eru 47 talsins og hvert með sínu sniði. Innréttingar, listmunir og aðrir skrautmunir vísa til þekktra óperusöngvara, tónskálda og sýninga.

Hótelið er í franska hverfinu, skammt frá óperuhúsi borgarinnar og Hoan Kiem-vatni. Staðsetningin hentar því vel þeim sem vilja skoða borgina fótgangandi og snúa síðan aftur í rólegra umhverfi.

Innan dyra bíða meðal annars heilsulind, innisundlaug og veitingastaðurinn Backstage, þar sem bæði víetnamskir og alþjóðlegir réttir eru á matseðlinum.

Capella Hanoi er í franska hverfinu í höfuðborg Víetnams, skammt frá óperuhúsi borgarinnar. Herbergin og svíturnar eru 47 talsins, hvert með sínu sniði, og sækir hönnunin innblástur í óperuhús og sviðslistir þriðja áratugar síðustu aldar. Skjáskot/TripAdvisor

Amanoi fyrir þá sem sækjast eftir næði

Við Vinh Hy-flóa, í náttúru Núi Chúa-þjóðgarðsins, stendur Amanoi. Þar ráða fjöllin, gróðurinn og sjórinn miklu um upplifunina. Arkitektinn Jean-Michel Gathy hannaði hótelið með áherslu á að byggingarnar féllu að landslaginu og sæktu innblástur í víetnamska byggingarhefð.

Gestir geta meðal annars valið um rúmgóð gistihús og villur með einkasundlaug. Heilsulindin stendur við vatn með lótusblómum og á svæðinu eru einnig jógaskáli, sundlaug við klettabrún og einkaströnd.

Amanoi er því freistandi kostur fyrir ferðamenn sem vilja hægja á sér og láta náttúruna njóta sín.

Amanoi stendur við Vinh Hy-flóa í Núi Chúa-þjóðgarðinum. Byggingar hótelsins falla að landslaginu og gestir geta notið næðis í villum með einkasundlaug. Skjáskot/TripAdvisor

The Nam Hai fyrir strandlíf og menningu

Við Ha My-strönd, skammt frá Hoi An, er Four Seasons Resort The Nam Hai. Þar eru hundrað villur, þar af fjörutíu með einkasundlaug, í görðum sem teygja sig meðfram um kílómetra langri strandlengju. Þrjár útisundlaugar gefa gestum kost á að velja á milli fjölskyldulífs, sundæfinga og kyrrðar í laug sem er eingöngu ætluð fullorðnum.

Nálægðin við sögulega bæinn Hoi An gerir auðvelt að sameina afslöppun við sjóinn og skoðunarferðir.

Á hótelinu má einnig kynnast víetnamskri matargerð á matreiðslunámskeiðum eða verja deginum í heilsulindinni. Barnaklúbbur og fjölskylduvillur gera staðinn að áhugaverðum kosti fyrir þá sem ferðast með börn, en stærri villur henta líka vinahópum sem vilja dvelja saman.

Four Seasons Resort The Nam Hai stendur við Ha My-strönd, skammt frá sögulega bænum Hoi An. Þar eru hundrað villur, þar af fjörutíu með einkasundlaug, og geta gestir sameinað afslöppun við sjóinn og kynni af víetnamskri menningu og matargerð. Skjáskot/TripAdvisor

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅