45 ára í sól og sjó eftir þyngdartapið

Amy Schumer naut sólarinnar í blómamynstruðum sundbol á Turks- og Caicoseyjum. Samsett mynd/Instagram

Leikkonan Amy Schumer naut lífsins með fjölskyldu sinni á Turks- og Caicoseyjum í Karíbahafi á dödögunumHún birti myndir úr fríinu á Instagram þar sem hún sést meðal annars um borð í báti í blómamynstruðum sundbol og að kafa í tærum sjónum.

„Við fjölskyldan áttum yndislegar stundir á Turks- og Caicoseyjum,“ skrifaði Schumer, sem er 45 ára.

„Tvær bestu ákvarðanir lífs míns voru að verða móðir og að öðlast köfunarréttindi. Ef ykkur hefur alltaf langað að kafa, eins og mig, ættuð þið ekki að bíða!“

Með Schumer í för var sjö ára sonur hennar, Gene, sem hún á með fyrrverandi eiginmanni sínum, Chris Fischer. Í viðtali við fjölmiðla vestanhafs sagði hún köfunina hafa verið meðal hápunkta ferðarinnar en sonurinn hefði jafnframt skemmt sér vel í vatnsrennibrautagarði hótelsins.

Mæðginin urðu einnig óvænt vitni að brúðkaupi á ströndinni. Þau fylgdust með athöfninni úr sólbekkjum sínum áður en Schumer slóst í hóp brúðkaupsgesta og laumaði sér inn á myndir af brúðhjónunum.

Heilsan í fyrirrúmi

Schumer hefur undanfarið talað opinskátt um heilsu sína og þyngdartap. Í desember 2025 greindi hún frá því að hafa lést um tæp 23 kíló og lagði áherslu á að heilsufarsástæður hefðu ráðið för.

Leikkonan, sem hefur greinst með Cushings-heilkenni, hefur jafnframt sagt frá notkun sinni á lyfinu Mounjaro. Hún hefur ítrekað að markmiðið með þyngdartapinu hafi fyrst og fremst verið að bæta heilsuna.

Page Six

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅