Tíu börn fara í ævintýraferð með fjölskyldum sínum

Tíu börn fengu ferðastyrk Icelandair en frá árinu 2003 hefur sjóðurinn Vildarbörn verið starfræktur. Ljósmynd/Aðsend

„Vildarbarnasjóðurinn hefur um árabil gert börnum og fjölskyldum þeirra kleift að upplifa draumaferðir og það er okkur hjartans mál að halda áfram að styðja við þetta mikilvæga verkefni. Stuðningur viðskiptavina, fyrirtækja og einstaklinga skiptir sköpum og við erum afar þakklát fyrir þær góðu viðtökur sem sjóðurinn hefur fengið frá upphafi. Það er ekki sjálfgefið að sjóður sem þessi starfi samfleytt í svo langan tíma. Það er samhentum hópi fólks að þakka, allt frá frumkvöðlum sjóðsins til stjórnar og starfsfólks, sem hefur lagt mikla alúð við starfið,“ segir Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair en á laugardaginn var fengu tíu börn og fjölskyldur þeirra ferðastyrk úr sjóði Vildarbarna Icelandair. 

Afhendingin fór fram í nýjum höfuðstöðvum Icelandair í Hafnarfirði. Sjóðurinn er nú á sínu 23. starfsári og alls hafa vel yfir 800 fjölskyldur ferðast á vegum hans frá upphafi en úthlutunin er sú 42. í röðinni.

Markmið sjóðsins er að gefa langveikum börnum eða börnum sem búa við sérstakar aðstæður, og fjölskyldum þeirra, tækifæri til þess að fara í draumaferð til útlanda. Í hverjum styrk felst skemmtiferð fyrir barnið og fjölskyldu þess. Allur kostnaður er greiddur en innifalið er flug, gisting, dagpeningar og aðgangseyrir að sérstökum viðburði sem barnið óskar sér. 

Ferðasjóður Vildarbarna var stofnaður árið 2003 með það að markmiði að styðja við langveik börn og börn sem búa við sérstakar aðstæður. Úthlutanir eru tvisvar á ári, á sumardaginn fyrsta og fyrsta vetrardag.

Verndari sjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir. Sjóðurinn er fjármagnaður með stofnframlagi frá Icelandair auk þess sem framlög frá viðskiptavinum Icelandair, fyrirtækjum og einstaklingum skipa mikilvægan sess. Hjónin Peggy og Sigurður Helgason hafa frá upphafi drifið starfsemi sjóðsins áfram, setið í stjórn hans og veitt rausnarlegan stuðning. Peggy er iðjuþjálfi og hefur um árabil unnið sem sjálfboðaliði á barnadeildum sjúkrahúsa í Reykjavík og stutt fjölskyldur fjölda veikra barna með ýmsum hætti. Sigurður er fyrrverandi forstjóri og stjórnarformaður Icelandair.

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅