Beina flugið besta gjöfin

Nú geta Íslendingar flogið beint til Kína og aftur heim.

He Rulong, sendiherra Kína á Íslandi, segir beint flug Air China til Íslands bestu gjöfina í tilefni 55 ára afmælis tvíhliða samskipta ríkjanna tveggja. 

Fyrsta flug Air China lenti á Keflavíkurflugvelli í hádeginu í dag eftir millilendingu í Kaupmannahöfn. Flogið verður þrisvar í viku, á mánudögum, fimmtudögum og laugardögum og tekur ferðin alls um 15 klukkustundir og 45 mínútur, að meðtalinni millilendingunni í Kaupmannahöfn.

Flogið verður þrisvar í viku, á mánudögum, fimmtudögum og laugardögum og tekur ferðin alls um 15 klukkustundir og 45 mínútur, að meðtalinni millilendingunni í Kaupmannahöfn. AFP

Endurspeglar vilja til nánara samstarfs

Rulong segir við China Daily að flugleiðin muni greiða fyrir ferðalögum, viðskiptum og samstarfi á sviði atvinnulífs, auk samskipta milli háskóla, rannsóknastofnana, menningarstofnana og ungs fólks.

Hann segir þá flugið endurspegla vilja beggja ríkja til nánara samstarfs, víðtækari samskipta og sterkari tengsla.

Seint á árinu 2024 tóku Kínverjar upp einhliða undanþágu frá vegabréfsáritun fyrir íslenska ríkisborgara sem gerir handhöfum almennra vegabréfa kleift að dvelja í allt að 30 daga vegna viðskipta, fjölskylduheimsókna, samskipta eða ferðamennsku.

Mætir væntingum í báðum löndum

Segir Rulong við China Daily að þessi nýja flugtenging muni gera jökla, eldfjöll og norðurljós Íslands aðgengilegri fyrir kínverska ferðamenn og um leið gefa Íslendingum fleiri tækifæri til að kynnast sögu, menningu og nútímasamfélagi Kína.

„Flugið mætir væntingum fólks í báðum löndum, svarar þörfum fyrirtækja og nýtur öflugs stuðnings beggja ríkisstjórna. Það markar jafnframt mikilvægt skref fram á við í samskiptum fólks og hagnýtu samstarfi.“

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅