Hestvagnar hverfa úr Central Park
Hestvagnastjóri bíður eftir farþegum í Central Park í New York. Borgarstjórn hefur samþykkt að banna rekstur hestvagna frá júní 2028. AFP/Timothy A. Clary
Borgarstjórn New York hefur samþykkt frumvarp sem bannar rekstur hestvagna í borginni frá 1. júní 2028.
Þar með lýkur langri hefð í Central Park, þar sem boðið hefur verið upp á ferðir með hestvögnum frá árinu 1858.
Frumvarpið bíður undirritunar Zohrans Mamdani borgarstjóra en talsmaður hans segir hann ætla að staðfesta það. Rekstraraðilar fá um tveggja ára aðlögunartíma til að hætta starfsemi og finna hestunum ný heimili.
Dýraverndarsamtök hafa lengi barist fyrir banninu og bent á að umferð, hávaði og álag stofni bæði velferð hestanna og öryggi fólks í hættu.
Fyrirhugað bann við hestvagnaferðum markar endalok nær 170 ára hefðar í Central Park. AFP/Spencer Platt
Banvæn slys ýttu undir bannið
Umræðan fékk byr undir báða vængi í sumar eftir að hinn 18 ára Romanch Mahajan lést af völdum áverka sem hann hlaut þegar hann féll úr hestvagni í Central Park 17. júní.
Sama mánuð féll 16 ára hestur niður og drapst þar sem hann dró vagn með farþegum í garðinum. Frumvarpið ber nafn Mahajans.
Dýraverndarsamtökin ASPCA fögnuðu samþykktinni og sögðu hana marka tímamót eftir áratugalangar deilur og ítrekuð slys. Borgaryfirvöld segjast jafnframt vinna að því að tryggja sem besta vernd fyrir rekstraraðila og starfsfólk við aflagningu starfseminnar.
Rekstraraðilar hestvagna fá um tveggja ára aðlögunartíma til að hætta starfsemi og finna hestunum ný heimili. AFP/Timothy A. Clary
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


