Með sex ára dóttur í tónleikaferðalagi
Daisy Dove slæst í för með mömmu sinni og fær að kynnast lífinu á tónleikaferðalagi. Skjáskot/Instagram
Söngkonan Katy Perry hefur haft sex ára dóttur sína, Daisy Dove, með sér á tónleikaferðalagi sínu, Lifetimes Tour.
Hún vonast til að ferðalagið verði dótturinni innblástur og sýni henni hvað felst í því að fylgja ástríðu sinni.
„Hún sér móður sína gera það sem hún brennur fyrir og það er gott fyrir hana. Hún sér mömmu sína vera sterka,“ sagði Perry í viðtali við People í september.
Perry, sem fagnaði 42 árum um helgina, á dótturina með leikaranum Orlando Bloom. Þau slitu trúlofun sinni árið 2025 en leggja áherslu á að setja velferð dótturinnar í fyrsta sæti.
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗