„Samstarfið við Air China er mikilvægt skref“

Qu Guangji, forstjóri China National Aviation Holding Corporation og Air China og Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Ljósmynd/Aðsend

Íslenska flugfélagið Icelandair og Air China hafa undirritað samstarfssamning um sammerkt flug. Samstarfið stóreflir tengingar milli Íslands og Kína. Með því að sameina styrkleika leiðakerfa félaganna verður auðveldara fyrir viðskiptavini að ferðast til fleiri áfangastaða, á einum farmiða með farangurinn innritaðan alla leið á lokaáfangastað.

„Samstarfið við Air China er mikilvægt skref í áframhaldandi styrkingu leiðakerfis okkar og útvíkkun á neti samstarfsfélaga. Kína er einn af mikilvægustu flugmörkuðum heims og með samningnum getum við boðið viðskiptavinum okkar betri tengingar til fjölmargra áfangastaða þar á sama tíma og farþegar Air China fá greiðari aðgang að Íslandi,“ segir Bogi Nils Bogason í fréttatilkynningu. 

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅