Hleðslubanki sprakk um borð í flugvél

Flugvél lággjaldaflugfélagsins HK Express. Kona brenndist á hendi þegar hleðslubanki sprakk um borð í vél félagsins um helgina. AFP/Peter Parks

Kona brenndist á hendi þegar hleðslubanki ofhitnaði og reykur tók að berast frá honum um borð í flugvél HK Express á leið frá Hong Kong til Jeju í Suður-Kóreu um helgina.

Konan, sem er sextug, brenndist á vinstri þumalfingri þegar hún tók hleðslubankann úr tösku undir sæti sínu.

Að sögn slökkviliðsins í Jeju sprakk hleðslubankinn þegar konan tók hann úr töskunni.

Atvikið varð skömmu áður en vélin lenti. Flugliðar brugðust við með því að setja hleðslubankann í eldvarnarpoka og kæla hann í vatni.

Enginn annar slasaðist

Viðbragðsaðilar tóku á móti vélinni við komuna til Jeju. Konan fékk fyrstu hjálp og búið var um sárið áður en hún var afhent sjúkraflutningamönnum á flugvellinum.

Alls voru 236 farþegar og sjö manna áhöfn um borð. Enginn annar slasaðist.

HK Express baðst afsökunar á óþægindunum og sagði öryggi farþega og áhafnar ávallt í fyrirrúmi.

Independent

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅