Stefndu á Bahamaeyjar en enduðu í Kanada

Skemmtiferðaskip frá Royal Caribbean. Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Skemmtiferðaskip frá Royal Caribbean. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Ljósmynd/Royal Caribbean

Þúsundir farþega á skemmtiferðaskipinu Oasis of the Seas þurftu að skipta sundfötum út fyrir vetrarfatnað þegar óveður setti ferðaáætlanir þeirra úr skorðum.

Í stað þess að sigla til Bahamaeyja hélt skipið, sem er í eigu Royal Caribbean, til Halifax í Kanada.

Skipið lagði af stað frá New Jersey í Bandaríkjunum í sjö daga siglingu. Samkvæmt upphaflegri áætlun átti að koma við í Flórída og á Bahamaeyjum. Farþegar fengu að sögn fjölmiðla vestanhafs aðeins nokkurra klukkustunda fyrirvara á breytingunni áður en þeir fóru um borð.

„Maðurinn minn sagði við mig að þetta hlyti að vera brandari,“ sagði farþeginn Marie Durning. Hún þurfti að hafa hraðar hendur við að endurpakka fyrir ferðina.

„Ég er með vetrarhúfu og eyrnaskjól en gleymdi treflinum.“

Ók í sjö klukkustundir og sigldi svo aftur heim

Farþegar voru misánægðir með breytta ferðaáætlun. Nicholas Meli hafði lagt að baki sjö klukkustunda akstur frá Toronto til New Jersey ásamt fjölskyldu sinni. Við tók svo sigling aftur til Kanada í stað Bahamaeyja.

„Ég er mjög vonsvikinn. Ég er frá Kanada og mig langaði til Bahamaeyja,“ sagði hann.

Aðrir tóku breytingunni með meiri ró. Jim Matthews frá New Jersey sagðist ætla að gera það besta úr stöðunni.

„Svona fór þetta hjá okkur en ég er þakklátur og ætla að njóta ferðarinnar eins og kostur er. Ég hef líka komist að því að Halifax er falleg borg,“ sagði hann.

Skipið hafði dagsviðdvöl í Halifax þar sem farþegar gátu meðal annars rölt um hafnarsvæðið og farið í verslanir. Þar fengu þeir inneign upp á helming fargjaldsins til að nýta í aðra ferð, auk endurgreiðslu fyrir bókaðar skoðunarferðir í landi.

People

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅