Portúgalskt flugfélag hefur flug til Íslands

Portúgalska flugfélagið TAP Air mun hefja áætlunarflug milli Keflavíkur og Lissabon næsta vor. Flogið verður þrisvar í viku fram í lok október. AFP

Portúgalska flugfélagið TAP Air mun hefja flug milli Keflavíkur og Lissabon næsta vor. Flogið verður þrisvar í viku frá 1. apríl til 28. október 2027.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Keflavíkurflugvelli. TAP Air bætist þar með í hóp þeirra 28 flugfélaga sem hafa boðað að þau ætli að fljúga til og frá KEF næsta sumar. 

Fleiri ferðamöguleikar

Með nýju flugleiðinni opnast jafnframt möguleikar á tengiflugi frá Lissabon til fjölmargra áfangastaða, meðal annars Faro og Madeira í Portúgal, auk borga í Afríku og Suður-Ameríku.

„Það er afar ánægjulegt að bjóða TAP Air velkomið til Keflavíkurflugvallar. Lissabon er vinsæll og spennandi áfangastaður og um leið öflug tengimiðstöð til fjölmargra áfangastaða í Suður-Evrópu, Afríku og Suður-Ameríku. Við hlökkum til samstarfsins,“ segir Grétar Már Garðarsson, forstöðumaður flugfélaga og markaðsmála á KEF, í tilkynningu.

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅