Endalaus heimsreisa stöðvuð í Kambódíu
Íbúar skemmtiferðaskipsins Villa Vie Odyssey fengu aðeins nokkurra klukkustunda fyrirvara til að yfirgefa skipið eftir að rekstrarfélagið stöðvaði starfsemi sína.
Bandaríska fyrirtækið Villa Vie Residences, sem bauð fólki að búa um borð í skemmtiferðaskipi á samfelldri heimsreisu, hefur stöðvað starfsemi sína. Skipið er nú í Kambódíu.
Fyrirtækið segir miklar hækkanir á eldsneytisverði hafa gert reksturinn ósjálfbæran.
Í tilkynningu fyrirtækisins á dögunum kom fram að unnið væri með íbúum að því að skipuleggja brottför þeirra og útvega þeim tímabundið húsnæði.
Fengu nokkurra klukkustunda fyrirvara
Randy Cassingham, sem bjó um borð og heldur úti bloggi um búsetu á skemmtiferðaskipum, segir íbúa hafa fengið skilaboð frá forstjóra fyrirtækisins klukkan 7.08 að morgni mánudags. Þar hafi þeim verið gert að yfirgefa skipið fyrir klukkan 14 sama dag.
Að sögn Cassinghams kom ákvörðunin þó ekki að öllu leyti á óvart. Íbúar hafi vitað af rekstrarvanda og hann telur fleiri þætti en eldsneytisverð hafa ráðið för, meðal annars galla á viðskiptalíkaninu og mistök stjórnenda.
Fyrirtækið segir eldsneytiskostnað á hvern klefa hafa meira en þrefaldast á sumum svæðum í Asíu. Ekki sé hægt að velta slíkum hækkunum yfir á íbúana. Nú séu möguleikar á endurskipulagningu og nýju fjármagni til skoðunar.
Skipið lagði af stað frá Belfast haustið 2024. Boðið var upp á langtímabúsetu um borð, þar sem máltíðir, þrif og ýmis afþreying voru innifalin.
Villa Vie Odyssey lagði af stað í samfellda heimsreisu haustið 2024. Ferðin hefur nú verið stöðvuð í Kambódíu og íbúum gert að fara frá borði. Ljósmynd/Villa Vie Residences
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗