Bianca Censori heldur áfram að ögra
Bianca Censori vakti athygli í aðsniðnum samfestingi alsettum glitrandi kristöllum þegar hún mætti á tónleika eiginmanns síns, rapparans Kanye West, í Jakarta í Indónesíu um helgina.
Censori, sem er 31 árs og starfar sem arkitekt hjá Yeezy, birti mynd af sér í klæðnaðinum á Instagram. Við gegnsæjan samfestinginn klæddist hún glærum hælaskóm og hafði hárið slegið.
Fylgjendur hennar létu sitt ekki eftir liggja í athugasemdum. Einn sagði hana bókstaflega ljóma en annar líkti klæðnaðinum við sólkerfið.
West, sem er 49 ára, steig sjálfur á svið á Gelora Bung Karno-leikvanginum í fatnaði sem lýsti í myrkri og var með grímu í stíl.
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗