Féll fyrir óvenjulegum borgum á Spáni
Þegar fólk ákveður að fara til Spánar koma áfangastaðir eins og Barcelona eða Alicante oft upp. Leikkonan Catherine Zeta-Jones getur hins vegar ekki mælt nógu mikið með Baskalandi.
Zeta-Jones var nýlega í tökum í borgunum San Sebastian og Bilbao og heillaðist hún að borgunum þegar hún dvaldi þar að því fram kemur á vef Travel and Leisure. Hún sagði nauðsynlegt að heimsækja borgirnar ef fólk væri áhugasamt um mat en tók það fram að fólk gæti þurft að bíða í marga mánuði eftir borði.
„Þetta er svo góð matreiðsla að þú getur ekki ímyndað þér, þetta eru vísindi,“ sagði leikkonan. „Þú þarft að vera á stöðunum í fjóra klukkutíma af því það eru svo margir réttir.“ Kvikmyndastjarnan tók það fram að það væri góður matur út um allt, ekki bara á fínu og dýru veitingastöðunum. „Þú fórst á götumarkað og þar voru ótrúlegur matur, ég elskaði það.“
Meira en bara góður matur
Það var ekki bara maturinn sem heillaði Zeta-Jones. Hún kolféll fyrir töfrandi umhverfinu í kringum borgina San Sebastian. Í Bilbao var Guggenheim-safnið sem hún hélt mest upp á og átti hún varla til orð yfir hönnun arkitektsins Frank Gehry en byggingin er þekktasta kennileiti borgarinnar. „Ég fer til borga til að skoða arkitektúr frekar en að fara á strendur til þess að liggja í sandinum. Það er ótrúlegt hvernig ljósið fellur á bygginguna á ákveðnum tíma,“ sagði Zeta-Jones um bygginguna.
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
