Karl tók konungleg dansspor á Bahamaeyjum
Karl III. Bretakonungur steig dans þegar hefðbundin Junkanoo-götuganga fór fram í Nassau, höfuðborg Bahamaeyja.
Konungurinn er í sinni fyrstu ferð um Karíbahafið frá því hann tók við krúnunni og gaf sér einnig tíma til að heilsa upp á götusala á þingtorginu í borginni.
Þrýst hefur verið á Karl að biðjast afsökunar á þrælaverslun. Í upphafi ferðarinnar viðurkenndi hann „miklar þjáningar fortíðar“ sem fólk hefur mátt þola.
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗