Viktoría og Sóli í ástarfríi í Edinborg

Viktoría og Sóli stilltu sér upp við sama símaklefa í Edinborg með níu ára millibili. Samsett mynd/Instagram

Hjónin Viktoría Hermannsdóttir, dagskrárgerðarkona hjá RÚV, og Sólmundur Hólm, grínisti og skemmtikraftur, brugðu undir sig betri fætinum á dögunum og héldu til Edinborgar í Skotlandi í sannkallað ástarfrí.

Þar endurgerðu þau níu ára gamla ferðamynd.

Hjónin stilltu sér upp við rauðan símaklefa á High Street, sem er hluti af hinni frægu Royal Mile í gamla bænum í Edinborg. Þau höfðu látið mynda sig á sama stað árið 2017 og var því tilvalið að endurtaka leikinn.

„2026 vs 2017,“ skrifuðu þau við færslu á Instagram þar sem sjá má nýju myndina og þá eldri.

Hafa verið saman í tíu ár

Viktoría og Sóli hafa verið saman frá árinu 2016 og trúlofuðu sig í París árið 2018. Þau gengu síðan í hjónaband í Dómkirkjunni í Reykjavík 10. september 2022.

Saman eiga þau tvö börn en fyrir átti Viktoría dóttur og Sóli tvo syni. Ekki má svo gleyma hundinum Fúsa sem er líka hluti af fjölskyldunni.

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅