„Ég er einhvern veginn farin að njóta dagsins meira“

Alexandra Guðrúnardóttir kann vel við sig á strönd með blóm í hárinu. Ljósmynd/Aðsend

Alexandra Guðrúnardóttir er 19 ára metnaðarfull kona sem tók ákvörðun nýverið um að elta drauma sína og flytja til lítillar eyju í Kyrrahafi. Hún segir að það hafi hjálpað til við þessa flutninga að eiga vinkonu á staðnum sem tók vel á móti sér og saman eru þær duglegar að skoða eyjuna og gera sér dagamun.

Vinna Alexöndru gerir henni kleift að búa svo gott sem hvar sem er í heiminum.

„Ég er sjálfstætt starfandi við samfélagsmiðla. Ég vinn bæði við mína eigin miðla og við að búa til efni fyrir fyrirtæki. Akkúrat þessa dagana er ég því að vinna, skapa efni og njóta lífsins hér á Havaí, þar sem ég bý, eins mikið og ég get,“ segir hún.

Hún er búsett í náttúruparadís á eyjunni Oahu sem er ein af 137 eyjum sem Havaí samanstendur af. Ljósmynd/Aðsend

Hvenær fluttirðu til Havaí?

„Ég flutti til í lok ágúst á þessu ári. Þar áður bjó ég í Reykjavík en ég er upprunalega frá Höfn í Hornafirði og ólst þar upp. Ég hef þó ekki alltaf búið á Íslandi. Ég fæddist í Flórída og er hálfbandarísk, en langstærstan hluta ævinnar hef ég búið á Íslandi.“

Hvers vegna ákvaðstu að flytja?

„Mig langaði fyrst og fremst í breytingu. Ég hef eiginlega alltaf vitað að mig langaði einhvern tímann að prófa að búa erlendis sjálf og svo opnaðist allt í einu möguleiki á að flytja til Havaí. Þetta var frekar skyndileg ákvörðun en mér fannst ég verða að grípa tækifærið.

Ég flutti ein út en ég er mjög heppin að eiga vinkonu hér sem ég bý með. Það gerði það að verkum að ákvörðunin og flutningarnir urðu auðvitað miklu auðveldari, því ég var ekki að mæta hingað án þess að þekkja neinn,“ segir hún.

Hvernig hefur verið að koma sér fyrir?

„Það hefur gengið ótrúlega vel. Ég held að það hafi skipt rosalega miklu máli að þekkja einhvern hér fyrir, þannig að ég var strax með manneskju sem gat hjálpað mér að átta mig á hlutunum og ég upplifði mig ekki alveg eina.

Það eina sem hefur kannski komið mér á óvart er hvað ég sakna Ikea! Ég hef þurft að panta og setja saman húsgögn sjálf með leiðbeiningabæklingum sem virðast stundum vera 500 blaðsíður. Ég held að ég hafi aldrei kunnað jafn vel að meta Ikea og eftir að ég flutti hingað.“

Hér eru vinkonurnar Raven og Alexandra á leið í fjallgöngu á fjallið Koko Head. Ljósmynd/Aðsend

Besti tími dagsins við sólsetur

Hvað heillar þig mest við lífið á Havaí?

„Það er örugglega lífsstíllinn. Ég elska eyjalífið, hitann og að geta verið svona mikið úti. Það er alltaf eitthvað hægt að gera, hvort sem það er að fara á ströndina, í göngu, sjá sólsetrið eða bara vera úti í góða veðrinu.

Mér finnst líka eins og ég geti einbeitt mér meira að sjálfri mér, heilsunni og vellíðan hér. Lífið er aðeins rólegra og ég finn ekki jafn mikið fyrir þessu endalausa stressi og hraða sem ég var oft föst í heima. Ég er einhvern veginn farin að njóta dagsins meira í stað þess að vera alltaf að hugsa um hvað ég þarf að gera næst,“ segir Alexandra.

Hvernig er hefðbundinn dagur hjá þér?

„Dagarnir mínir eru mjög mismunandi þar sem ég er sjálfstætt starfandi en yfirleitt vakna ég snemma og byrja daginn á því að fara í ræktina. Síðan kem ég heim, geri mig til og tek upp efni eða vinn í tölvunni.

Eftir vinnuna fer það svolítið eftir deginum hvað ég geri. Stundum fer ég á ströndina, út að versla, skoða eitthvað nýtt eða geri eitthvað með vinkonu minni. Við vinkona mín endum svo mjög oft daginn á sólsetursgöngu, sem er eiginlega orðinn uppáhaldsparturinn minn af deginum. Það er eitthvað svo gott við að enda daginn þannig.“

Hún er búin að koma sér upp fínni rútínu sem býður upp á vinnu, hreyfingu og að vera úti í náttúrunni. Ljósmynd/Aðsend

Mikil skyndiákvörðun

Er eitthvað sérstakt sem þig langar að gera á meðan þú býrð þarna?

„Planið mitt núna er að vera hér í að minnsta kosti eitt ár og mig langar bara að nýta þann tíma eins vel og ég get, sjá eins mikið af Havaí og ég get, fara í fjallgöngur, kynnast menningunni og prófa nýja hluti.

Ég bý á Oahu, þar sem Honolulu er, en eitt af stærstu markmiðunum mínum er að heimsækja hinar eyjarnar líka. Mig langar rosalega mikið að upplifa hversu ólíkar þær eru og sjá meira af Havaí en bara af eyjunni sem ég bý á. Hvað gerist eftir þetta ár veit ég ekki enn þá, sem er mjög ólíkt mér, en mér finnst það líka bara spennandi.“

Planarðu yfirleitt mikið fram í tímann?

„Ég er rosalega mikill planari og hef alltaf verið mjög skipulögð. Yfirleitt vil ég helst vita nákvæmlega hvað er að fara að gerast næstu sex mánuðina og ef ég veit það ekki get ég orðið stressuð.

Þess vegna held ég að þessir flutningar hafi verið mjög góðir fyrir mig. Þetta var svo mikil skyndiákvörðun og lífið mitt breyttist mjög hratt. Ég veit í fyrsta skipti í langan tíma ekki nákvæmlega hvað ég verð að gera eftir hálft ár eða ár og mér líður bara vel með það.

Akkúrat núna veit ég bara að ég bý á Havaí, er að vinna við það sem mér finnst skemmtilegast og ætla að njóta þess. Ég er aðeins farin að læra að lifa meira í núinu í stað þess að vera alltaf að hugsa um næsta skref,“ segir hún.

Eyjalífið hefur haft áhrif á það hvernig Alexandra lítur á lífið. Ljósmynd/Aðsend

„Það sem mig langar þó mest að gera hérna er klárlega að heimsækja og upplifa allar helstu eyjarnar. Mig langar líka að fara í eins margar fjallgöngur og ég get, prófa alls konar nýja hluti og einfaldlega segja oftar: já, við hlutum sem ég hefði kannski ekki gert áður.

Mig langar að geta litið til baka eftir árið og fundist ég virkilega hafa nýtt tímann og upplifað Havaí, frekar en bara búið hér.“

Hvaða lærdóm dregurðu af síðustu mánuðum?

„Ef það er eitthvað sem ég hef lært síðustu mánuði þá er það að maður á ekki að ákveða fyrirfram að draumarnir manns séu of stórir eða óraunhæfir. Ég er bara stelpa frá Höfn í Hornafirði sem byrjaði að setja inn myndbönd á samfélagsmiðla af því að mér fannst það skemmtilegt. Í dag fæ ég að vinna við samfélagsmiðla í fullu starfi og bý á Havaí af því að mig langaði að prófa það og lét einfaldlega verða af því.

Ég held að við séum stundum sjálf fljótust að finna ástæður fyrir því af hverju eitthvað eigi ekki eftir að ganga upp. Ég vil miklu frekar hugsa: af hverju ætti þetta ekki að geta gengið?

Það eru svo ótrúlega margir möguleikar í dag og maður veit aldrei hvert þeir geta leitt mann ef maður þorir að prófa. Ég veit alls ekki nákvæmlega hvað tekur við hjá mér en akkúrat núna er ég bara mjög ánægð með að hafa þorað að taka þessa ákvörðun og ætla að njóta þess að vera hér og sjá hvert þetta leiðir mig.“

Hún hefur sett sér einföld markmið um að skoða sem flestar eyjar í Havaí næsta árið og halda áfram að lifa og læra. Ljósmynd/Aðsend

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅