48 tímar í Stokkhólmi að hætti Paltrow

Hér er Gwyneth Paltrow á röltinu í Stokkhólmi. Hún mælir með borginni. Skjáskot/Instagram

Stokkhólmur er í uppáhaldi hjá mörgum Íslendingum enda norræn borg en ekki alveg eins og Kaupmannahöfn. Kvikmyndastjarnan Gwyneth Paltrow fór nýlega til Stokkhólms í tvo sólahringa og féll kylliflöt fyrir borginni. 

Paltrow deildi upplifun sinni á heimasíðu Goop en einnig á Instagram-síðu sinni. 

„Mér fannst Stokkhólmur vera allt öðruvísi en allar aðrar evrópskar borgir sem ég þekki,“ sagði Paltrow meðal annars í færslu sinni en hún var í borginni til þess að vera viðstödd Spotify-ráðstefnu. Hún sagði borgina vera svala en um leið fallega. Á sama tíma hefði allt notagildi í borginni. 

Safn

Paltrow fór meðal annars á safnið Moderna Museet. Hún sagði safnið bæði nútímalegt og framúrstefnulegt. Tók hún fram að fyrsta sýning Andy Warhol í Evrópu hefði farið fram á safninu. 

Matur

Sænski miðillinn Svensk Damtidning greinir frá því að Paltrow hafi komið við í Saluhallen og gætt sér á góðum mat á veitingastaðnum Lisa Elmqvist. Veitingastaðurinn fagnaði einmitt nýverið 100 ára afmæli. Ekki er langt síðan Paltow var stödd í borginni og þá greindi vefmiðillinn frá því að hún hefði borðað nokkra rétti á japanska staðnum Miyakodori í Vasastan.

Sjálf greindi hún frá því að hún væri hrifin af sjávarréttum Svía og væri leið yfir því að hafa ekki komist á veitingastaðina Frantzén og Brasserie Astoria. 

Gwyneth Paltrow og eiginamður hennar, Brad Falcuk, borðuðu í Saluhallen.

Gwyneth Paltrow og eiginamður hennar, Brad Falcuk, borðuðu í Saluhallen. Skjákost/Instagram

Hótel

Paltrow gisti á hótelinu The Diplomat sem stendur alveg við sjóinn, þetta er í annað sinn sem hún gisti á hótelinu. Á hótelinu er notalegur bar og veitingastaður. Snobbuðu vinir hennar mæla hins vegar með hótelinu Ett Hem sem hún á enn eftir að prófa.

Gwyneth Paltrow mælir með hótelinu The Diplomat í Stokkhólmi.

Gwyneth Paltrow mælir með hótelinu The Diplomat í Stokkhólmi. Skjáskot/Instagram

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅