Einkaþotan er sérstaklega glæsileg

Ferðalög | mbl | 1.11.2026 | 8:00 | Uppfært 2.11.2026 11:21

Hér má sjá Karl konung stíga út úr einkaþotu sinni. Einkaþotan er sérstaklega glæsileg. AFP/Aaron Chown

Karl III. Bretakonungur flýgur með afar glæsilegri einkaþotu þegar hann ferðast í opinberum erindagjörðum. Einkaþotan er vel búinn og innréttuð að hluta eftir hans höfði.

Karl er um þessar mundir á ferðalagi í Karíbahafinu og deildi breska konungsfjölskyldan mynd af honum í einkaþotunni í tilefni þess. Í færslunni kom fram að Karl heldur áfram að vinna þegar hann flýgur og er hann duglegur að lesa skýrslur og fara yfir þau verkefni sem hann þarf að sinna. 

Á myndinni má sjá að Karl er af gamla skólanum og hann flýgur í skyrtu og með bindi. Hann er einnig í jakkafatabuxum. Þægileg föt eins og joggingföt eru ekki ferðafatnaður í hans bókum. Í flugvélinni má einnig sjá púða með köflóttu mynstri sem sýnir ást Karls á Skotlandi. 

Karl er duglegur að vinna á meðan hann ferðast.

Karl er duglegur að vinna á meðan hann ferðast. Skjáskot/Instagram

Konungurinn er ekki sá eini sem nýtir flugvélina. Forsætisráðherra Bretlands gerir það einnig sem og aðrir úr ríkisstjórninni. Kóngurinn situr í betri sætum en aftar í vélinni eru einnig hefðbundin sæti eins og almenningur er vanur að ferðast á. 

Karl konungur flýgur með einkaþotu og er hún í bresku fánalitunum. AFP/Isabel Infantes

内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅