París ekki lengur rómantískasti staður í heimi
París hefur lengi verið talinn einn rómantískasti staður í heimi. Nú er hins vegar farið að halla fæti hjá frönsku borginni. Í nýrri könnun varð eyjan Maui á Havaí frekar fyrir valinu hjá fólki þegar það valdi rómantískasta stað í heimi.
Könnunin var gerð á vegum FunJetVacations að því fram kemur á vef Travel and Leisure og tóku tvö þúsund Bandaríkjamenn þátt í könnuninni.
Í niðurstöðum kom í ljós að 34 prósent þeirra sem tóku þátt völdu Maui sem rómantískasta stað í heimi. Rétt á eftir kom París, borg ástarinnar. Í þriðja sæti var Róm en það voru 29 prósent sem völdu ítölsku borgina sem rómantískasta stað í heimi. Í fjórða sæti voru Feneyjar og í því þriðja var Cancun í Mexíkó.
Þrátt fyrir að niðurstöðurnar komi á óvart er ekki skrítið að Maui sé talin rómantískur staður. Á Maui er fallegar strendur, sjóinn og pálmatrén. Þar að auki eru góður matur á eyjunni.
内容来自 Mbl.is - Ferðalög,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


