Þingmenn til staðar: „Við glímum við missi og sorg“

Diljá Mist segir fæsta sjá hlýhuginn á milli góðra kollega á þingi. mbl.is/Karítas

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þrátt fyrir harðar pólitískar deilur og átök á Alþingi ríki þar mikill hlýhugur og kærleikur á milli þingmanna, þvert á flokkslínur. Líkt og á öðrum vinnustöðum glími fólk þar við erfiðleika, missi og sorg og þá skipti stuðningur samstarfsfólks miklu máli.

Þetta kom fram í máli Diljár undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag, þar sem hún ákvað að nýta ræðutíma sinn til að hrósa samstarfsfólki sínu í stað þess að gagnrýna ríkisstjórnina. 

„Á þessum ágætlega fjölmenna vinnustað glímum við eins og aðrir við áskoranir og áföll. Við glímum við missi og sorg,“ sagði Diljá.

Fæstir sjá hlýhuginn

Hún sagði að almenningur sæi gjarnan aðeins átökin og rifrildin á Alþingi en síður þá samstöðu sem ríkti meðal þingmanna þegar á reyndi.

„Allir geta séð rifrildin hér og hártoganirnar í þingsal og í kjaftaþáttum, upplausn og læti yfir pólitískum ágreiningi þar sem orð oft er svert til stáls.“

Önnur hlið á þingstörfunum væri hins vegar síður sýnileg.

„En fæstir sjá hlýhuginn á milli góðra kollega, þvert á flokka. Faðmlögin á göngunum, hvatninguna, uppbyggilegu samtölin, kærleika sem er mjög áþreifanlegur þegar fólk gengur hér í gegnum erfiðleika.“

„Alþingi er slíkur vinnustaður“

Diljá vék einnig að litlu trausti almennings til Alþingis og stjórnmálamanna og sagðist sannfærð um að það hefði jákvæð áhrif ef landsmenn fengju betri innsýn í mannlegu hliðina á þingstörfunum.

„Ég er viss um að ef landsmenn sæju þessa hlið á okkur hefði það góð áhrif. Fólk tengdi betur við okkur.“

Hún sagði gott fólk starfa á Alþingi, þótt hugsjónir þess væru ólíkar, og lagði áherslu á mikilvægi þess að eiga stuðning samstarfsfólks vísan þegar erfiðleikar steðjuðu að.

„Hér vinnur gott fólk með mismunandi hugsjónir að leiðarljósi en ásetningur allra er góður.“

Diljá lauk máli sínu á því að segja að þegar fólk gengi í gegnum erfiðleika skipti miklu að starfa á góðum vinnustað.

„Alþingi er slíkur vinnustaður,“ sagði hún.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab