Flest skip í höfn á Tálknafirði
Tálknafjarðarhöfn í morgun. Flest skip í höfn og verið að afferma fóður úr fóðurskipi. mbl.is/Guðlaugur Albertsson
Á Tálknafirði voru flest skip í höfn í morgun. Á svæðinu var rigningarveður og gekk á með hviðum.
Guðlaugur Albertsson, fréttaritari Morgunblaðsins, sá sér leik á borð og fangaði augnablikið með drónamyndavél sinni.
Síðan hefur aðeins lægt og einhverjir farnir að hugsa sér til hreyfings, segir hann.
Auk smærri báta var þjónustuskipið Rotsund í höfn og verið að afferma fóður fyrir fiskeldi Arctic Fish á Vestfjörðum.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗