Vinskapur í Valencia leiddi til sölu Samskipa
Hugmyndin að sölu Samskipa kom hvorki frá forsvarsmönnum félagsins né stjórnendum spænska skipafélagsins Boluda Shipping. Hún kviknaði í tengslum við samstarf fyrirtækjanna um siglingaleiðir á Suðurhöfum.
Ólíkt því sem tíðkast á Íslandi er algengt á alþjóðlegum flutningamarkaði að fyrirtæki starfi saman til að draga úr kostnaði og bæta þjónustu.
Þetta segir Ólafur Orri Ólafsson, forstjóri Samskipa, en eins og fram kom í gær hefur félagið verið selt í heild sinni til spænska félagsins.
Flutti frá Íslandi níu ára gamall
Ólafur Orri er 31 árs sonur Ólafs Ólafssonar og Ingibjargar Kristjánsdóttur, sem eru aðaleigendur Samskipa, að minnsta kosti fram að áramótum, þegar salan á að ganga í gegn.
Hann bjó á Íslandi fyrstu tæpu tíu ár ævi sinnar en hefur síðan búið í Bandaríkjunum, Sviss og Hollandi, þar sem hann býr nú. Höfuðstöðvar Samskipa eru í Rotterdam í Hollandi.
Seldi siglingarleiðir um leið og hann tók við
„Þegar ég tók við sem forstjóri í október 2025 byrjaði ég á því að selja nokkrar siglingaleiðir til Bretlands og Írlands. Þar höfðum við verið að keppa við ferjur sem sigldu yfir Ermarsund á 16 klukkustundum og lágu síðan í heilan dag í höfn áður en þær gátu lagt aftur af stað. Það er ekki þannig sem maður vill reka skip,“ segir Ólafur.
Í framhaldinu hafi vinna hafist við að bæta rekstur fyrirtækisins og þá hafi skapast tækifæri til að hefja samstarf við Boluda Shipping.
„Þetta er fjölskyldufyrirtæki og fjölskylda sem ég hef þekkt í á fjórða ár,“ segir Ólafur.
„Þetta byrjaði þannig að ég hitti Ignacio Boluda, stjórnarformann Boluda Shipping. Faðir hans, Vicente Boluda, er eigandi og stjórnarformaður Boluda-samstæðunnar. Ég hitti Ignacio í Valencia í mars 2023 og hef kynnst þeim vel í tengslum við samstarf okkar á Spáni.
Ekki heimilt á Íslandi
Við höfum unnið saman í þrjú ár á sameiginlegum siglingaleiðum, í svokölluðum vessel sharing agreements (samningar um samnýtingu skipa). Slíkt samstarf er heimilt erlendis en ekki á Íslandi. Hér á landi eru mjög strangar reglur um samkeppni og fyrirtæki mega ekki ræða saman með sama hætti og tíðkast erlendis, þar sem samstarf er algengt til að bæta áreiðanleika og þjónustu,“ segir Ólafur.
Í tengslum við samstarfið kviknaði hugmyndin um að selja fyrirtækið í heild sinni. Ólafur segir að hugmyndin hafi þróast með náttúrlegum hætti og ekki sé hægt að segja að annað fyrirtækið hafi átt frumkvæðið að sölunni.
Það besta fyrir fyrirtækið
„Við vissum að þetta væri það besta fyrir fyrirtækið, því þá yrðum við hluti af miklu stærra flutningsneti og gætum veitt viðskiptavinum okkar mun betri þjónustu og eflt fyrirtækin saman,“ segir Ólafur.
Kaupverðið verður ekki gefið upp, að sögn Ólafs, og hann á ekki von á því að það verði gert síðar.
Spurður hvar söluhagnaðurinn verði skattlagður vill Ólafur ekki tjá sig um það.
„Ég vil ekki tjá mig um það,“ segir hann.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
