„Það verður fjárfest í Samskipum“
Engin formleg trygging liggur fyrir um að störf verði ekki flutt frá Íslandi eftir að Samskip verða að fullu í eigu spænska skipafélagsins Boluda Shipping. Spænska félagið líti hins vegar á Samskip og starfsemina á Íslandi sem „krúnudjásn“ Boluda-hópsins og viðbúið sé að fjárfest verði í starfseminni á Íslandi.
Þetta segir Ólafur Orri Ólafsson, forstjóri Samskipa.
Boluda-fjölskyldan kemur frá Kanaríeyjum og þekkir því vel til eyjasamfélaga á borð við það íslenska, að sögn Ólafs.
Vilja styrkja starfsemina á Íslandi
„Það verður fjárfest í Samskipum til að efla fyrirtækið og við horfum sérstaklega til Íslands í þeim tilgangi að styrkja starfsemina hér. Það sem skiptir mestu máli fyrir viðskiptavinina og um leið íslenskt samfélag er í rauninni fernt: áreiðanleiki, þjónusta, tíðni og samkeppnishæft verð. Með því að verða hluti af stærra félagi náum við betri stærðarhagkvæmni og getum bætt alla þessa þætti.“
Hann segir að meðal annars verði boðið upp á nýjar siglingaleiðir sem muni auka áreiðanleika og tíðni ferða.
„Þannig geta Íslendingar eflt viðskipti sín við Evrópu og önnur lönd,“ segir Ólafur Orri.
Engir aðrir fjárfestar komu að borðinu
Hann segir sterk tengsl fyrirtækisins við Ísland skýrast af því að það hafi verið stofnað hér á landi og að þau tengsl muni ekki breytast.
„Þótt höfuðstöðvar okkar séu ekki á Íslandi er stærsta starfsemi okkar enn hér á landi og hefur alltaf verið það.“
Að sögn Ólafs komu engir aðrir fjárfestar til greina.
„Við vorum ekki að leita eftir því að selja, en ég hef verið sannfærður um að Boluda myndi henta best sem samstarfsaðili okkar á Íslandi.“
Í dag eru engin gámaskip Samskipa skráð með festi á Íslandi og á Ólafur ekki von á því að breyting verði á því eftir eigendaskiptin.
„Sem mikill föðurlandsvinur myndi ég elska að vera með skip skráð á Íslandi, en áður en það getur gerst þarf Ísland að vera með samkeppnishæft flagg eins og önnur lönd. Bara þannig að það geti verið rökrétt að skrá skip á íslandi fjárhagslega. Því verður engin breyting þar.“
Stoltur af foreldrunum
Spurður hvernig honum líði með að fyrirtækið fari úr höndum fjölskyldunnar segist Ólafur fyrst og fremst vera stoltur.
„Ég er mjög ánægður fyrir hönd foreldra minna og fjölskyldunnar með þennan áfanga. Ég lít ekki svo á að verið sé að missa fyrirtækið, heldur sé verið að koma því í góðar hendur til framtíðar og til uppbyggingar, bæði á Íslandi og í Evrópu. Við verðum nú hluti af Boluda Shipping, sem er hluti af stærsta flutningsneti Evrópu, og það er eingöngu jákvætt.“
Spurður hvort fjölskyldan fái hlut í Boluda segir Ólafur svo ekki vera.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
