Dómsmálið flyst til nýrra eigenda
Vicente og Ignacio Boluda ásamt Ólafi Ólafssyni og Ólafi Orra syni hans og núverandi forstjóra Samskipa. Ljósmynd/Aðsend
Mál Samkeppniseftirlitsins gegn Samskipum mun áfram hvíla á félaginu eftir að spænska skipafélagið Boluda Shipping tekur við eignarhaldi þess.
Ólafur Orri Ólafsson, forstjóri Samskipa, segir enga breytingu verða á afstöðu fyrirtækisins til málsins og að því verði fylgt eftir til enda.
„Samkeppnismálið mun alltaf fylgja Samskipum lögum samkvæmt,“ segir Ólafur Orri í samtali við mbl.is.
„Það mál verður tekið alla leið enda er það rangt í einu og öllu. Málið mun því fylgja fyrirtækinu og það er engin breyting á afstöðu fyrirtækisins gagnvart þessu.“
Milljarðar í húfi
Samkeppniseftirlitið lagði 4,2 milljarða króna stjórnvaldssekt á Samskip árið 2023 vegna ólögmæts samráðs við Eimskip. Áfrýjunarnefnd samkeppnismála lækkaði sektina í 2,4 milljarða króna í mars 2025.
Samkeppniseftirlitið sætti sig ekki við þá niðurstöðu og höfðaði mál til að fá sektina hækkaða á ný í 4,2 milljarða króna.
Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði málinu frá í mars síðastliðnum en Landsréttur sneri þeirri niðurstöðu við í júní og úrskurðaði að taka bæri málið til efnismeðferðar.
Samskip hafa mótmælt niðurstöðum samkeppnisyfirvalda og hyggjast, samkvæmt orðum forstjórans, halda vörnum sínum áfram þrátt fyrir eigendaskiptin.
Nýir eigendur taka við um áramót
Tilkynnt var í gær að Boluda Shipping hefði samið um kaup á öllu hlutafé í Samskipum. Gert er ráð fyrir að viðskiptin gangi í gegn 1. janúar næstkomandi, að fengnu samþykki eftirlitsaðila og að uppfylltum öðrum skilyrðum.
Við kaupin munu Ólafur Ólafsson og Ingibjörg Kristjánsdóttir, aðaleigendur Samskipa til áratuga, ganga út úr eigendahópnum.
Ólafur Orri verður áfram forstjóri samstæðu Samskipa undir nýju eignarhaldi.
Samkeppnismálið verður því áfram á ábyrgð Samskipa þótt nýir eigendur taki við félaginu. Ólafur Orri segir afstöðu fyrirtækisins óbreytta og ljóst að málinu sé ekki lokið.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗