Fimmtán umsagnir við þörungafrumvarp
Marvíslegar vörur eru unnar úr þörungum. Myndin er frá ráðstefnu um stórþörungaræktun sem fram fór á Akranesi fyrr í haust. mbl.is/Óli Kristján
Fimmtán umsagnir bárust í samráðsgátt stjórnvalda um nýtt frumvarp til laga um stórþörungaræktun í sjó. Fundið var að því í nokkrum umsagnanna að miðað við umfang laganna hafi umsagnarfrestur verið skammur miðað við umfang laganna.
Drögin voru birt í samráðsgáttinni 16. október, en frestur til að skila inn umsögn rann út 28. október.
Nýsköpunarfyrirtækið Marea óskaði eftir framlengdum fresti til að skila inn umsögn en Julie Encausse, stofnandi og forstjóri fyrirtækisins, segir þeirri umleitan ekki hafa verið svarað. Hún segir afar jákvætt að fá frumvarp fram en telur það um leið hafa verðskuldað meiri rýni.
„Þetta er mjög mikilvægt skref í uppbyggingu atvinnugreinar á Íslandi sem við erum öll hjartanlega sammála,“ segir hún, en bendir um leið á að vanda þurfi til lagasetningarinnar því með henni sé verið að setja fordæmi fyrir öll Norðurlöndin.
„Það eru engin önnur lönd á Norðurlöndum með sérstakan lagaramma fyrir stórþörungarækt og þá er svolítið skakkt að ekki sé gefinn raunhæfur tími til að kynna sér efnið og koma með ígrundaðar athugasemdir.“
Í þeim athugasemdum sem bárust er í nokkrum gerð athugasemd við klásúlu í lögunum um að rannsóknir sem lagt hafi verið í veiti ekki forgang þegar komi að útgáfu starfsleyfis.
Þannig telja Samtök þörungafélaga mikilvægt að tryggja rannsóknarleyfishöfum ákveðinn forgang við úthlutun rekstrarleyfa á svæðum þar sem þeir hafa fjárfest í rannsóknum, búnaði og þróun ræktunar.
„Við teljum óeðlilegt að slíkar fjárfestingar og sú þekking sem aflað hefur verið á viðkomandi svæði skapi enga sérstaka réttarstöðu við síðari úthlutun rekstrarleyfis,“ segir í umsögn samtakanna.
Þá telur Persónuvernd rétt að skilgreina betur heimildir og meðhöndlun Stofnunar atvinnuveganna á eftirliti með leyfisskyldri starfsemi.
Stofnun atvinnuveganna tekur um næstu áramót við verkefnum Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu skiptaverðs.
Þá hvetja NASF á Íslandi og Landssamband veiðifélaga til þess að tekið verði tillit til áhrifa á fiskistofna í ám og vötnum við útgáfu rannsóknar- og starfsleyfa.
NASF á Íslandi varar líka við því að stórþörungarækt verði nýtt sem tæki til að heimila aukið laxeldi í sjókvíum eða til að stytta að sniðganga hvíld eldissvæða.
„Innan fiskeldisgeirans hefur víða verið horft til svokallaðrar samþættrar ræktunar, þar sem þörungar eru ræktaðir við eða á eldissvæðum til að taka upp næringarefni frá eldinu. Slík samþætting getur auðveldlega orðið rök fyrir því að eldissvæði beri meira eldi en ella,“ segir í umsögn samtakanna.
Umsagnirnar eru allar aðgengilegar í samráðsgátt stjórnvalda.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
