Öryggislokun á hluta vefja Hafró

Hluta vefja Hafró sem geyma viðkvæm gögn hefur verið lokað tímabundið. mbl.is/Eyþór

Nokkrir vefir Hafrannsóknastofnunar eru tímabundið lokaðir vegna PHP öryggisveikleika.

Á vef Hafró er vísað til þess að nýverið hafi verið greint frá alvarlegum öryggisveikleikum í PHP forritunarmálinu, en á því byggi fjöldi vefsíðna um allan heim.

„CERT-IS, netöryggissveit íslenskra stjórnvalda, hefur hvatt stofnanir til að takmarka aðgang að viðkvæmum kerfum eða taka þau niður,“ segir þar.

Fram kemur að unnið sé að lausn málsins.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅