Kom í veg fyrir að hvalbátunum yrði sökkt
Jón Baldur Hlíðberg er til viðtals í Sönnum sakamálum. Þar eru til umfjöllunar fyrirhuguð skemmdarverk á bátum Hvals hf. árið 1981. Til hægri er Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf. Samsett mynd
Ungur íslenskur hvalaverndunarsinni kom í veg fyrir að erlendir menn sökktu hvalbátunum og kveiktu í hvalstöðinni í Hvalfirði fimm árum áður en hvalbátunum var sökkt í Reykjavíkurhöfn árið 1986. Þetta kemur fram í nýjum þætti af Sönnum sakamálum sem nú er kominn í sýningar í Sjónvarpi Símans Premium.
Í þættinum ræðir Sigursteinn Másson við Jón Baldur Hlíðberg sem var á þessum tíma virkur í náttúruverndarsamtökunum Skuld, sem börðust meðal annars gegn hvalveiðum. Jón Baldur segir frá samskiptum sínum við erlenda menn sem vildu stöðva hvalveiðar Íslendinga með skemmdarverkum og hvernig honum tókst að tefja fyrir þeim þar til hann leitaði til lögreglu og fyrirætlanir mannanna runnu út í sandinn.
Í maí 1980 var Jón Baldur beðinn um að hitta Frakkann Jean-Paul Fortom-Gouin, fulltrúa Panama í Alþjóða hvalveiðiráðinu, sem vildi komast í samband við íslenska hvalaverndunarsinna. Í gegnum þessi kynni komst hann einnig í samband við Bretann Roger Retting.
Samkvæmt frásögn Jóns Baldurs voru fyrst uppi áform um að sökkva hvalbátunum við bryggju. Hann bauðst til að taka verkið að sér en dró málið á langinn og lét ekkert verða af því. Þegar bátarnir héldu svo til veiða vonaði hann að þar með væri málinu lokið.
Svo reyndist ekki vera. Stuttu síðar kom annar Breti til landsins og hafði samband við Jón Baldur. Maðurinn hafði starfað sem kafari í Norðursjónum en slasast við sandblástur og var í leit að nýjum ævintýrum. Jón Baldur lýsir honum sem málaliða. Sá hafði áform um að kveikja í hvalstöðinni í Hvalfirði og eyðileggja tækjabúnað þar en Jón Baldur fékk hann ofan af því. Bretinn hugðist þá sökkva hvalbátunum í staðinn.
Jón Baldur lét sem hann væri með í ráðum, geymdi meðal annars bakpoka fyrir manninn og reyndi að tefja undirbúninginn eins lengi og hann gat.
Átti að valda miklum skaða
Í viðtali við Morgunblaðið sem birtist í lok júlí 1981 lýsti Jón Baldur ítarlegum undirbúningi mannanna. Útvega átti eldfima blöndu sem brynni við mikinn hita og gæti valdið verulegum skemmdum. Bretinn taldi að með henni mætti sökkva skipi eða að minnsta kosti gera hvalbátana óstarfhæfa um lengri tíma.
Í blaðaviðtalinu kom einnig fram að búið væri að skipuleggja hvernig maðurinn kæmist að bátunum og undan eftir verkið. Nota átti bíl með öðrum númeraplötum svo ekki væri hægt að rekja hann. Þegar búið væri að koma efninu fyrir átti Bretinn að vara vaktmanninn við svo fólk gæti forðað sér, hlaupa síðan í gegnum Slippinn og að bíl sem biði hans.
Jón Baldur áttaði sig á að hann gæti ekki lengur tafið fyrir mönnunum og leitaði til lögreglu
„Þá var mitt næsta verk að keyra í Auðbrekkuna í Kópavogi og láta lögregluna vita. Þeir þurftu ekkert á mér að halda,“ segir Jón Baldur í viðtalinu við Sigurstein Másson í Sönnum sakamálum.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗



