Næsta skref er að hefja framleiðslu

Laxalúsagildran lítur út eins og bolli á hvolfi.

Laxalúsagildran lítur út eins og bolli á hvolfi. Teikning/LiceDefence

Norsk laxeldisfyrirtæki sýna nýrri tækni LiceDefence mikinn áhuga. Þar í landi hefur gengið erfiðlega að finna lúsavarnir sem virka.

Örvar Guðni Arnarson.

Örvar Guðni Arnarson.

Örvar Guðni Arnarson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Ísfélagi, sem er í eigendahópi LiceDefence, lýsti tækninni nýverið í Lagarlífi 200 mílna.

Um er að ræða ljósgildrur sem líka framleiða klór til að drepa lúsina.

Ekki þarf að útrýma allri lús og segir Örvar að í sjókvíaeldi sé farið eftir ákveðnum viðmiðum um hvenær nauðsynlegt sé að meðhöndla fiskinn við lúsasmiti.

„Reglan er að fara ekki yfir hálfa lús á hvern fisk að meðaltali og gæti LiceDefence hjálpað fyrirtækjum að halda sig undir því marki mun lengur eða jafnvel allan framleiðslutímann.“

Fram undan eru ítarlegri prófanir og tilraunir með ólíkar útfærslur á lúsagildrunni.

Setja upp verkstæði í Björgvin

„Hafrannsóknastofnun Noregs hefur sýnt þessu feikilegan áhuga og óskað eftir að fá að gera ýmsar tilraunir á kerfinu okkar,“ segir Örvar, en öll einkaleyfi fyrir gildrunni eru í höfn.

„Þá hafa fleiri framleiðendur haft samband og óskað eftir að fá að taka þátt í prófununum.“

Þróunarvinnan er á þeim stað að tímabært er fyrir LiceDefence að hefja framleiðslu fyrir alvöru og er unnið að því að koma upp verkstæði í Björgvin í Noregi.

„Smíðin sjálf er ekki mjög tæknilega flókin en það er alltaf áskorun að setja upp afkastamikinn framleiðslubúnað fyrir nýtt tæki.“

Allt viðtalið við Örvar Guðna má lesa HÉR.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅