Konur í sjávarútvegi fá nýja stjórn

Ný stjórn Kvenna í sjávarútvegi. F.v: Anna Björk Theodórsdóttir, Hera Katrín Aradóttir, Guðríður Svana Bjarnadóttir, Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, Erla Tryggvadóttir, Linda Ósk Kjartansdóttir, Mariam Laperashvili og Ólöf Helga Jónsdóttir. Á myndina vantar Önnu Soffíu Víkingsdóttur. Ljósmynd/KIS/Hulda Margrét

Aðalfundur Kvenna í sjávarútvegi (KIS) samþykkti á dögunum að starfsemi Kvenna í eldi, sem hefur verið deild innan KIS, færist inn í almennt starf félagsins.

Þá hefur ný stjórn verið kjörin, en formaður hennar er Erla Tryggvadóttir.

Í tilkynningu félagsins er það sagt breikka vettvang KIS að taka inn Konur í eldi og með því nái það til kvenna þvert á sjávarútveg, fiskeldi og tengdar greinar.

Konur í bláa hagkerfinu standi saman

„Erla Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri hjá IcelandPet, var kjörin formaður Kvenna í sjávarútvegi og fjórar nýjar konur tóku sæti í stjórn félagsins,“ segir þar.

Haft er eftir Erlu að vilji KIS standi til þess að konur í bláa hagkerfinu vaxi og nái árangri saman.

„Það er mikil þekking og reynsla til staðar og við höfum tækifæri til þess að læra hver af annarri. Með því að sameina krafta okkar getum við styrkt tengslanetið og haft áhrif á spennandi framtíð í íslenskum sjávarútvegi,“ segir hún.

Fram kemur að í KIS séu nú um 260 félagskonur og að félagið hafi vaxið jafnt og þétt á undanförnum árum.

Fyrri formaður sat í þrjú ár

Nýjar í stjórn, kjörnar til tveggja ára, eru Anna Björk Theodórsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Oceans of Data, Guðbjörg Oddný Jónasdóttir, samskiptastjóri Benchmark Genetics, Hera Katrín Aradóttir, sérfræðingur hjá Fiskistofu, og Ólöf Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og stoðsviða Kaldvíkur.

Áfram sitja í stjórninni Anna Soffía Víkingsdóttir, gæðastjóri hjá Haustaki, Linda Ósk Kjartansdóttir, fjármálastjóri hjá Ganta, Mariam Laperashvili, markaðsstjóri hjá Wisefish, og Guðríður Svana Bjarnadóttir, verkefnastjóri fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka.

„Erla tekur við formennsku af Tinnu Gilbertsdóttur, sem hefur leitt félagið síðastliðin þrjú ár.“

Úr stjórninni ganga einnig Fanney Björk Friðriksdóttir hjá Brimi, Ingveldur Ásta Björnsdóttir stjórnarkona hjá Odda á Patreksfirði, Sandra Antonsdóttir hjá Einhamri Seafood og Silja Baldvinsdóttir hjá Arnarlaxi.

„KIS þakkar þeim öllum kærlega fyrir frábært samstarf og mikilvægt framlag til félagsins.“

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅