Eyjaskipin halda sig á Austfjörðum
Bergey VE og Vestmannaey VE í höfn í Neskaupstað í gær, fimmtudaginn 29. október. Ljósmynd/SVN/Smári Geirsson
Eyjaskipin Bergey VE og Vestmannaey VE hafa að undanförnu landað tvisvar í viku í Neskaupstað.
Fram kemur á vef Síldarvinnslunnar að afli skipanna fari að mestu til vinnslu hjá Vísi í Grindavík.
„Skipin komu bæði til löndunar í gær og voru hvort um sig með um 60 tonna afla,“ segir á heimasíðunni.
Meira af þorski en ýsu
Þar er haft eftir Jóni Valgeirssyni, skipstjóra á Bergey, að fiskast hafi ágætlega í stuttum túr.
„Í reyndinni mun betur en ég átti von á,“ segir hann.
„Við fórum út á sunnudagskvöld og sigldum beinustu leið norður á Vopnafjarðargrunn. Þar reyndist vera þorskreytingur og dálítil ýsa með.“
Þaðan hafi verið haldið norður á Glettinganesflak í leit að meiri ýsu, en þar hafi aflinn líka reynst vera þorskur að meirihluta.
Alls staðar reytingur
„Þorskurinn er hérna fyrir austan að elta síldina og það er talsvert af honum en minna af ýsunni. Það var fræsingur í veðrinu í túrnum, sperringur að norðan og norðvestan,“ segir Jón
Þá kemur fram að Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, hafi haft svipaða sögu að segja.
„Við byrjuðum túrinn í suðurkantinum á Digranesflakinu og vorum þar í rúman sólarhring. Síðan var keyrt á Glettinganesflakið,“ segir Birgir Þór.
Alls staðar hafi verið reytingur, en aflinn var mest þorskur.
„Ég geri ráð fyrir að við verðum eitthvað áfram að veiðum hér fyrir austan,“ segir hann líka.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗