Hlutafjáraukning fyrirhuguð hjá Kaldvík

Frá eldi Kaldvíkur á Austfjörðum.

Frá eldi Kaldvíkur á Austfjörðum. mbl.is/Þorgeir Baldursson

Kaldvík hefur náð samkomulagi við lánveitendur og hluthafa um stuðning og ábyrgðarfyrirkomulag vegna endurfjármögnunar félagsins.

Í nýjum samningi er gert ráð fyrir langtímalausn á fjármögnun félagsins, að því er fram kemur í kauphallartilkynningu.

Fyrir lok árs á að fara fram hlutafjáraukning sem skili að lágmarki 97 milljónum evra í brúttóandvirði, eða sem svarar til tæplega 13,2 milljarða króna.

„Gert er ráð fyrir að hlutafjáraukningin skili félaginu að minnsta kosti 70 milljónum evra í hreinu lausafé, að frádregnum endurgreiðslum eða uppgjöri víkjandi skulda við hluthafa og viðskiptakostnaði.“

70 milljónir evra jafngilda 9,5 milljörðum króna.

„Félagið hefur ráðið DNB Carnegie, sem er hluti af DNB Bank ASA, Arion banka og Nordea Bank Abp NUF sem sameiginlega umsjónaraðila bókbyggingar (Joint Bookrunners) í tengslum við fyrirhugaða hlutafjáraukningu.“

Kaldvík hefur undanfarið starfað á undanþágu frá lánaskilmálum eftir að innflæði marglytta varð til þess að eldisfiskur í Reyðarfirði drapst í stórum stíl.

„Atburðurinn hefur haft neikvæð áhrif á líffræðilega framleiðslu og fjárhagsstöðu félagsins. Hann hefur aukið lausafjárþrýsting og fjármögnunarþörf félagsins til skamms tíma og þar með hraðað yfirstandandi endurfjármögnunarferli,“ segir í tilkynningunni.

Vidar Aspehaug er forstjóri Kaldvíkur.

Vidar Aspehaug er forstjóri Kaldvíkur.

Greint er frá uppfærðum samningi við lánveitendur sína og samkomulagi um helstu skilmála við Austur Holding AS, Heimstø AS og Ísfélag hf.

Fram kemur að lánveitendur Kaldvíkur séu Arion banki, DNB, Landsbankinn og Nordea.

„Þegar breytingarnar hafa tekið gildi munu heildarlánaskuldbindingar vegna langtímaláns og veltulánafyrirgreiðslu nema um 232 milljónum evra, samanborið við um 207 milljónir evra samkvæmt núverandi lánasamningum.“

232 milljónir evra jafngilda 31,5 milljörðum króna.

Að uppfylltum umsömdum skilyrðum felur langtímafjármögnunin meðal annars í sér:

  • Framlengingu á lokagjalddaga fjármögnunarsamninga félagsins til 30. júní 2030.
  • Endurgreiðslu að fjárhæð 15 milljónir evra af langtímaláninu við lok fjármögnunarferlisins. Að henni lokinni er gert ráð fyrir að eftirstöðvar langtímalánsins verði um 102 milljónir evra.
  • Aukningu um 15 milljónir evra á heimild til nýtingar veltulánafyrirgreiðslunnar umfram gildandi lánshæfan eignagrunn, í tengslum við 15 milljóna evra endurgreiðslu langtímalánsins. Sú viðbótarheimild verður í gildi til október 2028.
  • Hækkun heildarlánaskuldbindinga vegna veltulánafyrirgreiðslunnar úr 90 milljónum evra í 130 milljónir evra, með fyrirvara um gildandi skilyrði um lánshæfan eignagrunn.
  • Breytt endurgreiðsluferli langtímalánsins, þar sem gert er ráð fyrir að reglulegar afborganir hefjist í mars 2029.

Breytingarnar eru sagðar taka gildi þegar umsömd skilyrði hafa verið uppfyllt, þar á meðal að lokið verði við fyrirhugaða hlutafjáraukningu og viðeigandi endurgreiðsla langtímalánsins hafi farið fram.

Þá kemur fram að lánveitendur Kaldvíkur hafi samþykkt að framlengja núverandi undanþágutímabil til og með 17. desember 2026.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅