Hægt hefur á kínverska markaðnum

Sverrir Haraldsson, yfirmaður erlendrar starfsemi Vinnslustöðvarinnar, fylgist með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra taka í hendina á Hiroki Igarashi, sem starfar við sölu- og markaðsmál hjá Vinnslustöðinni. Ljósmynd/VSV

Fulltrúar Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum hittu kaupendur og kynntu afurðir fyrirtækisins á sjávarútvegssýningunni China Fisheries & Seafood Expo í Qingdao í Kína í vikunni.

Á vef fyrirtækisins kemur fram að horfur fyrir komandi loðnuvertíð hafi verið ofarlega á baugi, en einnig hafi gefist tækifæri til að ræða stöðu markaða og ný viðskiptatækifæri.

„Vinnslustöðin var með bás á sýningunni líkt og undanfarin ár. Hún er haldin árlega í Qingdao og er ein stærsta sýning sinnar tegundar í heiminum,“ segir á vef VSV.

Fulltrúar VSV á sýningunni voru Sverrir Haraldsson, yfirmaður erlendrar starfsemi, Yohei Kitayama, sölustjóri í Japan, og Hiroki Igarashi, sem starfar við sölu- og markaðsmál hjá Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum.

Efnahagsþróun og hátt verð hafa áhrif

Haft er eftir Yohei Kitayama að hægt hafi á kínverska markaðnum eftir mikinn vöxt undanfarinna ára. Þess hafi meðal annars gætt í aðsókn kínverskra kaupenda á sýninguna.

„Við finnum fyrir minni kaupgetu fyrirtækja í Kína og minni eftirspurn. Kínverskum kaupendum á sýningunni hefur líka fækkað,“ segir Yohei.

Hann telur skýringuna helst liggja í efnahagsþróuninni en hátt verð á fiskafurðum hafi einnig áhrif.

„Kaupendur kvarta yfir háu verði og lélegri afkomu. Fiskafurðir hafa hækkað mikið í verði um allan heim og það virðist koma sérlega illa við kaupendur í Kína,“ segir hann.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅