Telur svör ekki standast reglur
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja segir endurskoðun á synjun starfsleyfis til fiskvinnslunnar Premium of Iceland í Reykjanesbæ ráðast af fundi nefndar sem óvissa sé um hvenær verði.
Að beiðni bæjarstjóra sótti fyrirtækið aftur um starfsleyfi hjá heilbrigðiseftirlitinu en fékk um miðjan mánuðinn þau svör að leggja þyrfti umsóknina fyrir heilbrigðisnefnd sveitarfélaganna á Suðurnesjum. Ekkert lægi fyrir um hvenær nefndin fundaði.
Svörin vonbrigði
Gylfi Þór Markússon, framkvæmdastjóri Premium of Iceland, segir svörin hafa valdið vonbrigðum en þau séu í takt við svör til annarra fyrirtækja.
„Það er annar verkandi hérna í næstu götu fyrir aftan mig sem hefur fengið þannig svör,“ segir hann og telur vafa leika á um að afgreiðslan standist reglur um góða stjórnsýslu.
Í vor var fyrirtækinu synjað um starfsleyfi af því að reksturinn samræmdist ekki skipulagsáætlunum og í september voru staðfestar dagsektir á það.
Þessari málsmeðferð hefur verið mótmælt og Gylfi bent á að starfsemin ætti bara að vera skráningarskyld.
Forsendur synjunar standist ekki. Hann hefur líka sagst íhuga bótakröfu á hendur bænum.
Auk uppsagnanna hafi málið leitt til þess að fyrirtækið hafi orðið af 300 milljóna króna fjárfestingu.
Bærinn vill að fyrirtækin fái að vera
Vilhjálmur Árnason bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir afstöðu bæjarins vera að fyrirtæki á umræddu svæði eigi að fá að starfa áfram þar til kveðið hafi verið á um annað.
Málið sé hins vegar enn á forræði heilbrigðiseftirlitsins.
Hann vonast til að heilbrigðisnefndin komi brátt saman.
„Hún verður að funda reglulega til að afgreiða skráningar,“ segir hann.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗