Reglugerðarbreytingin jákvætt skref

Seiðaeldisker hjá Laxey í Vestmannaeyjum. Þar er notuð ný íslensk tækni frá Héðni til að þurrka mykju frá fiskeldinu og búa til úr henni áburð. mbl.is/Brynjólfur Löve

Vonir standa til að fyrirhugaðar breytingar á regluverki auðveldi uppbyggingu nýtingarfarvegar fyrir fiskeldismykju.

„Drög að nýrri áburðarreglugerð sem kynnt voru í sumar eru mjög jákvætt skref og endurspegla skýran vilja stjórnvalda til að skapa ramma um nýtingu lífrænna hliðarstrauma,“ segir Gyða Pétursdóttir, tengiliður landeldis hjá Bændasamtökum Íslands.

Í Lagarlífi 200 mílna sagði hún sérstaklega jákvætt að sjá fiskeldismykjuna skilgreinda sem áburðarvöru af lífrænum uppruna.

Enn séu þó nokkur atriði sem þarfnist frekari skýringa og útfærslu og sé mikilvægt að reglugerðin styðji við raunhæfa og hagkvæma uppbyggingu nýrra lausna.

„Reglugerðin eykur jafnframt fyrirsjáanleika um kröfur til gæða, rekjanleika og öryggis og er mikilvægt skref í átt að því að líta á lífræna hliðarstrauma sem auðlind fremur en úrgang. Í heild eru drögin því mjög jákvætt skref í rétta átt,“ segir Gyða.

Allt viðtalið við Gyðu Pétursdóttur má lesa HÉR.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅