Leikstjórinn tekur þátt í umræðum
Áhugasömum um vernd villtra laxastofna býðst að horfa á heimildamynd og taka þátt í umræðum um málefnið í Reykjavík á þriðjudaginn og á Akureyri á fimmtudag.
Heimildamyndin Superfish Salmon verður sýnd í Gamla bíói klukkan sjö þriðjudaginn 3. nóvember og svo á sama tíma í Hofi á Akureyri 5. nóvember.
Sýningartími myndarinnar er ein klukkustund, en að sýningu lokinni verða umræður um stöðu villtra laxastofna.
Í pallborði verða:
- Rick Rosenthal, kvikmyndagerðarmaður og sjávarlíffræðingur, sem stýrir umræðum
- Jóhannes Sturlaugsson, líffræðingur
- Jón Helgi Björnsson, formaður Landssambands veiðifélaga
- Ásgeir Atli Ásgeirsson, leiðsögumaður við laxveiðar og veiðimaður
- Jón Birgir Tómasson, yfirkokkur á North by Dill Rick
Ekki er rukkað inn á sýninguna en gestir geta skráð sig á vef myndarinnar: www.superfishsalmon.com.
Sýningar myndarinnar hér á landi eru sagðar hluti af alþjóðlegri baráttu til að vekja athygli á því að villti laxastofninn sé í hættu.
Heimsfrumsýningin hafi verið í sjónvarpi í Tókýó og eins sé myndin til sýningar í Noregi og víðar í Evrópu.
Verkefnið á Íslandi er sagt unnið í samstarfi við Verndarsjóð villtra laxastofna (NASF) og Landssamband veiðifélaga.
内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
