Pochettino setur þrjár óvenjulegur reglur

Mauricio Pochettino.

Mauricio Pochettino. AFP/Glyn Kirk

Argentínski knattspyrnustjórinn Mauricio Pochettino er strax byrjaður að láta til sín taka hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United.

Pochettino, sem er 54 ára gamall, tók við stjórnartaumunum hjá United í vikunni af Michael Carrick en United er í 18. sæti úrvalsdeildarinnar og fallsæti eftir fyrstu tíu umferðirnar.

Pochettino stýrði sinni fyrstu æfingu í gærdag en hann hefur nú sett þrjár nýjar reglur fyrir leikmannahóp liðsins.

Í fyrsta lagi verða leikmenn að mæta á æfingar daginn eftir leiki en eina undantekningin er þegar liðið er að koma til baka eftir langt ferðalag í Evrópukeppnum.

Í öðru lagi munu leikmenn liðsins þurfa að gangast undir reglulegar fitumælingar og þá mun liðið þurfa að borða saman fyrir alla leiki liðsins svo starfslið félagsins geti fylgst náið með því sem leikmenn láta ofan í sig.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab